"Lengi verið draumurinn að komast með litlu tá inn í þennan kvikmyndaheim” Ellý Ármanns skrifar 21. ágúst 2014 09:45 Védís Hervör.
Védís Hervör, tónlistarkona mun ljá bíómyndinni Shadows, lag sitt White Picket Fence en það er jafnframt hennar fyrsta smáskífa í langan tíma. Lagið kom út á síðasta ári við vinsældir hérlendra útvarpsstöðva og hefur nú ratað í hendur kvikmyndagerðarmanna vestanhafs. Jaðarmyndin Shadows sem gefin var út 1959 verður nú endurgerð í höndum rússneska leikstjórans Makinov, en upprunalega myndin er hugarfóstur John Cassavettes og þótti mjög róttæk á sínum tíma. Hún fjallar um samskipti ólíkra kynþátta á tímum Beat kynslóðarinnar í New York. „Þetta gerðist reyndar snemma á árinu og fór fljótt í einfaldan samning beint við framleiðslufyrirtækið. En eins og með allt annað í þessum bransa þá er ekkert gefið fyrr en ég heyri lagið óma í myndinni. En þetta er viðurkenning og hjálpar til við framhaldið og kynningu á laginu og ég hef lært að nýta mér allt slíkt til góðs. Ég hef verið í þessum lagasmíðabransa lengi og komið mörgu áleiðis sem ég er stolt af og þakklát fyrir alla brauðmolana, svo að segja, en þetta myndi toppa flest, hugsa ég. Lengi verið draumurinn að komast með litlu tá inn í þennan kvikmyndaheim.”En hvernig kom þetta til? „Röð tilviljana þar sem færeyskur félagi minn lét pródúsent fá lagið og hún hitti kollega sinn á kvikmyndahátíðinni í Chicago sem fær lagið í hendurnar ásamt safni skandinavískra laga á kubbi. Heppnin mætti þarna góðri vinnu hljómsveitarinnar og lagið er svosum ekkert slor og passar greinilega inn í þema myndarinnar þannig að margt spilar saman. Svo er bara að þora að vona að myndin verði eilítið meira en Blockbuster á rykugri hillu” segir hún og hlær. Hér má hlusta á White Picket Fence, en hljómsveit Védísar skipa einnig Ásgeir Ásgeirsson,Róbert Þórhallsson, Þorvaldur Þór Þorvaldsson og Þórhallur Bergmann. Geimsteinn ehf. mun gefa út næstu plötu Védísar sem er nú í vinnslu.
Mest lesið Alræmt hús á Túngötu til sölu Lífið Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni Lífið Tim Curry er látinn Bíó og sjónvarp „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Lífið Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Menning Svandís í ritstjórastól Menning Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lífið Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Lífið Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Lífið Fleiri fréttir Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Léttist við stöðugt pizzuát „Hún sagði já“ Orðin háð því að vera „enginn“ Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Myndaveisla: Litagleði og lögregla á Tónaflóði á Arnarhóli Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Leikkonan Bunny Levine er látin Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Steinn Ármann er látinn Kjóllinn brann korter í brúðkaup Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Sjá meira