Innlent

„Hver vill ekki umslag fullt af evrum í vasann?“

Ingvar Haraldsson skrifar
Jón Bjarnason vill að sveitastjórnarmenn geri hreint fyrir sínum dyrum.
Jón Bjarnason vill að sveitastjórnarmenn geri hreint fyrir sínum dyrum. Vísir/Stefán
Jón Bjarnason fyrrverandi ráðherra og Alþingismaður er ekki sáttur við afstöðu forsvarsmanna sveitarfélaga til umsóknar Íslands í Evrópusambandið. Þetta kom fram í grein sem birtist í Fréttablaðinu í morgun. Hann segir afstöðu þeirra skýrast á boðsferðum til Brussel sem Evrópusambandið bjóði upp á.

„Er það að furða þótt forystumenn stóru sveitarfélaganna gráti afturköllun umsóknarinnar? Hver vill ekki geta fengið frítt far til Brüssel, hótel og umslag fullt af evrum í vasann og gæluverkefnastyrki úr sjóðum Evrópusambandsins?“

Jón Bjarnason heldur áfram og segir slíkar boðsferðir algengari en almenningur átti sig á. „Ótrúlegur fjöldi, heilar hópferðir sveitarstjórnarmanna, starfsmanna bæjarfélaga, fyrirtækja og félagasamtaka og fjölmiðla hafa streymt í svokallaðar „kynnisferðir“ til Brüssel.

Jón spyr hvað sé í boði í slíkum ferðum. „Jú, frítt far frá heimastað til Brüssel, ókeypis dvöl á hóteli með morgunmat og nokkur hundruð evrur í eyðslufé, afhentar í umslagi við komuna til Brüssel. Ég veit um tiltekin dæmi, 340 evrur í vasann fyrir fjögurra daga ferð.“

Ráðherrann fyrrverandi telur að það sé á ábyrgð þeirra sem þegið hafi slíkar boðsferðir að upplýsa almenning um þær. „Jafnframt væri fróðlegt að vita hvað félagsmenn, starfsmenn og stjórnarmenn þeirra samtaka og fyrirtækja sem nú beita sér harðast fyrir áframhaldandi aðlögunarferli að ESB og inngöngu í sambandið hafa þegið í slíkum greiðslum. Fjölmiðlafólk er sérstaklega nefnt í „heimsóknaráætlun“ Evrópusambandsins. Kannski ætti það líka að gera hreint fyrir sínum dyrum í þessum efnum?“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×