„Hver framleiðir þetta drasl og markaðssetur fyrir börn?“ Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 11. nóvember 2013 16:45 Teitur hvetur almenning til að sniðganga vörurnar og láta heyra í sér.
Bloggarinn og þúsundþjalasmiðurinn Teitur Atlason gagnrýnir sykurmagn í mjólkurvörum á bloggsíðu sinni í dag undir nafninu Óþverri og ullabjakk. Honum sundlaði að eigin sögn þegar hann stóð við jógúrtstampinn í Krónunni þar sem staflar af jólajógúrt frá Mjólkursamsölunni voru á sértilboði. „Af hverju kaupir fólk þetta fyrir krakkana sína og hver framleiðir þetta drasl og markaðssetur fyrir börn?,“ skrifar Teitur, og bætir því við að það sé ótrúlegt að á sama tíma og íslensk börn séu þau feitustu í heimi sé maturinn sem framleiddur er fyrir þau eins óhollur og hugsast getur. „Þetta á ekki bara við um jólakúlugumsið,“ segir Teitur í samtali við Vísi. „Þetta á líka við um venjulega jarðarberjajógúrt og margt fleira. Það er ósiðlegt að markaðssetja þetta sem mat, og það fyrir krakka. Þetta er bara sælgæti.“ Teitur hvetur almenning til að sniðganga vörurnar og láta heyra í sér. Þá segir Teitur lækni hafa haft samband við sig sem var ánægður með skrifin. „Hann benti mér á það að það hefur orðið sprenging í tíðni sykursýki á síðustu árum, sérstaklega á Vesturlöndum. Maturinn sem við gefum börnunum er hættulegur ef maður passar ekki upp á innkaupin.“ Teitur segist ekkert hafa á móti Mjólkursamsölunni. Þvert á móti líki honum vel við fyrirtækið. „Það eru margar vörur fínar frá þeim en þetta sykurjukk setur það allt úr samhengi. Fyrirtæki eins og þetta, sem landsmenn eiga töluverð viðskipti við, verða að sýna samfélagslega ábyrgð. Það held ég að sé aðalatriðið.“
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Fleiri fréttir Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Sjá meira