"Hækkun í hafi“?

Fréttablaðið Aðsendar greinar 16. febrúar 2012 06:00
Þórólfur Matthíasson
hagfræðiprófessor
Þórólfur Matthíasson hagfræðiprófessor
Þórólfur Matthíasson skrifar:
Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri-grænna lofaði fyrir þremur árum, í stjórnarsáttmála, að stofna auðlindasjóð sem sæi um innheimtu afgjalda fyrir fénýtingu einstaklinga og fyrirtækja á sameiginlegum auðlindum þjóðarinnar. Líta má á hækkun veiðigjalds í fiskveiðum undangengin ár sem veika viðleitni til að standa við þetta loforð. En loforðið er engu að síður enn óefnt að flestra manna mati.

Ein ástæða þess að enn hefur ekki verið staðið við loforð um að þjóðin njóti tekna af eignum sínum er harkaleg andstaða útgerðarmanna. Minna má á endurteknar dýrar auglýsingaherferðir og síendurteknar fullyrðingar talsmanna útgerðar um að útgerðin hafi ekki efni á að greiða fyrir að nýta þjóðarauðlindina. Endurskoðendur sjávarútvegsfyrirtækjanna hafa heldur ekki dregið af sér í málafylgju fyrir skjólstæðinga sína. Sýnast sumir í þeim hópi jafn snjallir í að affegra reikninga útgerðarinnar sem þeir voru í fegrun ársreikninga bankanna á árum áður.

Þeir fjármunir sem um er að tefla þegar talað er um greiðslu fyrir nýtingarréttinn á þjóðarauðlindinni jafngildir svokallaðri auðlindarentu í sjávarútvegi. Upphæðin er veruleg þrátt fyrir fullyrðingar endurskoðenda um annað. Áætla má auðlindarentuna með því að skoða leiguverðmæti aflaheimildanna. Leiguverðmæti allra aflaheimilda við Ísland eru nálægt 60 milljarðar króna á ári um þessar mundir. Líklega er leiguverðið í hærri kantinum vegna lítils framboðs og áhrifa stjórnvaldssekta á verðmyndunina. Hagstofa Íslands birtir upplýsingar úr reikningum sjávarútvegsfyrirtækja. Auðlindarentuna má auðveldlega lesa úr þeirri skýrslugjöf, en hún jafngildir nokkurn veginn hreinum hagnaði þegar fjármagnskostnaður er reiknaður með svokallaðri árskostnaðaraðferð.

Myndin sem fylgir þessari grein lýsir þróun hreins hagnaðar útgerðarfyrirtækja annars vegar og útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækja hins vegar. Tölur eru færðar til verðlags ársins 2011 með neysluverðsvísitölu. Myndin ber með sér að hagnaður útgerðarfyrirtækja hefur nálægt þrefaldast að verðmæti síðan 2004. Myndin ber einnig með sér að hagnaður fiskvinnslu sé býsna sveiflukenndur, en hafi batnað mjög mikið eftir hrun banka og krónu.

Nú er það svo að mörg sjávarútvegsfyrirtæki hafa haslað sér völl bæði í veiðum og vinnslu. Fyrir því kunna að vera eðlileg rekstrarrök. En þessu fyrirkomulagi fylgir að fiskvinnsla er ósjaldan að kaupa hráefni af útgerðarfyrirtæki í eigu sama aðila. Með því að halda verði á ferskum fiski lágu minnkar bókfærður hagnaður útgerðarfyrirtækja en bókfærður hagnaður vinnslunnar eykst. Í leiðinni kann eigandinn að hagnast vegna þess að hlutur sjómanna (launagreiðslur sjómanna) skerðist sé fiskverð lækkað „með handafli". Raunveruleg auðlindarenta í íslenskum sjávarútvegi er því einhverstaðar milli ferlanna tveggja á línuritinu, þ.e.a.s. var á bilinu 22-45 milljarðar króna á árinu 2010 og hafði þá aukist um 20–30 milljarða á árinu 2008.

Það er rétt að staldra við nokkur atriði þegar línuritið er skoðað: Í fyrsta lagi sýnir það svart á hvítu að hreinn hagnaður sjávarútvegsins hefur aukist verulega eftir hrun bankanna. Í öðru lagi er sýnt að hafi sjávarútvegurinn getað lifað af við þær aðstæður sem voru 2003 til 2007 þá getur sjávarútvegurinn auðveldlega greitt 20 milljarða plús árlega í auðlindagjald við núverandi aðstæður. Í þriðja lagi hlýtur línuritið að vekja spurningar hjá sjómönnum og þeim sem eru í forsvari fyrir launamál þeirra. Ekki verður annað séð en að verðmæti afurðanna hækki verulega „í hafi", þ.e.a.s. á leið sinni til útflutningsmarkaðanna.

Stjórnarflokkarnir boða að til standi að efna loforð um að þjóðin fái að njóta tekna af sjávarauðlindinni. Vonandi gengur það eftir. Sjómenn hafa lengi krafist bættrar öryggisþjónustu. Væri það ekki viðeigandi, að nota fyrstu tvo milljarðana sem fengjust með endurbættu veiði- og/eða auðlindagjaldi til að svara því kalli og efla þyrlukost Landhelgisgæslunnar?

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Til borgarfulltrúa Besta flokksins

Kæru borgarfulltrúar Besta flokksins. Þið buðuð ykkur fram undir því yfirskyni að gera Rey...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Björt framtíð

Öfugt við væntingar hafa mörg okkar, sem sóttum málþing á vegum Háskólans á Bifröst og Ney...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Fiskveiðifrumvörpin eru andstæð þjóðarhagsmunum

Svo ótrúlegt sem það er, þá er það engu að síður staðreynd, að verði frumvörp ríkisstjórna...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Enn um sæstreng

Greinar Magnúsar Bjarnasonar, framkvæmdastjóra markaðs- og viðskiptaþróunarsviðs Landsvirk...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Tannpínusjúklingar nútímans

Undanfarin misseri hefur ástandið í tannheilsumálum þjóðarinnar verið til umræðu á opinber...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Vísindagreinar á mannamáli

Þó nokkur umfjöllun hefur átt sér stað í fjölmiðlum og í fræðasamfélaginu eftir að Magnús ...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Að varðveita sögu allra

Á síðustu áratugum hafa orðið miklar breytingar á íslensku þjóðfélagi og það hefur orðið á...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Á stjórnarandstaðan bara að halda kjafti og vera sæt?

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir skrifaði grein á dögunum þar sem hún kennir stjórnarandstöðu...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Landspítali í Fossvog

Við sameiningu Sjúkrahúss Reykjavíkur og Landspítala í eina stofnun á árinu 2000 var farið...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Komum mynd á mannréttindi

Í dag 16. maí er mannréttindadagur Reykjavíkurborgar en þennan dag árið 2006 var mannrétti...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Skyldan til að tala saman

Síðustu misseri hef ég lesið margar greinar og hlustað á ljósvakamiðla og játa að mig setu...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Um "leppshlutverk“ forsetans

Eitt af markmiðum stjórnlagaráðs við gerð tillögu um nýja stjórnarskrá var að afnema "lepp...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 17:30

Stuðningsgrein: Lýðræði er alltaf svarið!

Þá er það komið á hreint – Ólafur Ragnar Grímsson, forseti lýðveldisins, er byrjaður...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Vinkonan í ESB

Stundum velti ég því fyrir mér af hverju ég búi á Íslandi. Einhvern veginn tekst aldrei að...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Ólína, berðu í borðið!

Ólína Þorvarðardóttir hefur verið einn öflugasti talsmaður þingsins fyrir breyttu fiskveið...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Til varnar heildrænum meðferðum

Sif Sigmarsdóttir hallmælir „óhefðbundnum lækningum” eða heildrænum meðferðum ...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

"Allt að“ ekki neitt

Sjaldan hafa valkostir neytenda verið jafn margir og nú þegar kemur að fjarskiptatengingum...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Má kaupa sér niðurstöðu?

Árið er 2012, rúmum þremur árum eftir hrun, og aldrei hefur ofríki sérhagsmunaaflanna í sa...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Hagur útgerðar og veiðigjald

Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri Grænna lofaði því í samstarfsyfirlýsingu sinni árið 20...  

Meira
Aðsendar greinar 14. maí. 2012 09:14

Má bjóða þér á stefnumót?

Sesselja Thorberg og Magnús Sævar Magnússon giftu sig fyrir sjö árum. Þau fara á stefnumót...  

Meira
Aðsendar greinar 14. maí. 2012 09:14

Verðvernd er rökleysa

Verðvernd verslana er fullkomin rökleysa. Þeir sem auglýsa verðvernd bjóða nefnilega ekki ...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Við látum verkin tala

Það er fagnaðarefni á þriggja ára afmæli ríkisstjórnarinnar að meirihluti Alþingis skuli s...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Ágæti læknir, þiggur þú mútur?

Mánudagskvöldið 30. apríl fjallaði fréttaskýringaþátturinn „Spegillinn“ á RÚV ...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Ábendingar vegna leiðara

Í leiðara Fréttablaðsins í gær eru settar fram staðhæfingar tengdar gjaldeyrisútboðum Seðl...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Álfar út um allt

Það er stundum talað um að í Hafnarfirði séu fleiri álfar en annars staðar á landinu. Ekki...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Hafið: Vagga lífsins og fjöregg Íslands

Hafið er gullkista Íslendinga. Gjöfulir fiskistofnar umhverfis landið eru þeir sjóðir sem ...  

Meira
Aðsendar greinar 11. maí. 2012 18:10

Óupplýstir spekingar í Silfrinu

Ekki er furða að umræðan um forsetaembættið sé á villigötum þegar ritstjóri stærsta prentm...  

Meira
Aðsendar greinar 11. maí. 2012 06:00

Týndur á Paddington

Á fyrsta áratug ævi minnar hvarf pabbi hægt og örugglega inn í myrkur sjúkdóms sem tætti h...  

Meira
Aðsendar greinar 11. maí. 2012 06:00

Kostnaður hagsmunaaðila í stjórnmálabaráttu

Eftir baráttu ýmissa vinstrimanna fyrir upplýsingaskyldu og hámörkum á fjárframlög til stj...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 17:01

Hindra gjaldeyrishöft að næsta kynslóð sé étinn út á gaddinn?

Það er kannski tímabært að rifja upp hvers vegna gjaldeyrishöftin voru sett á Íslandi. Síð...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Brandarinn um Boot Camp

Forsvarsmanni líkamsræktarstöðvar Boot Camp sem ætlunin er að taki til starfa í Elliðaárda...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 12:02

Dauðyflin í Samfylkingunni

,,Þú ert bara foringjahollt dauðyfli sem styður leiðtoga þinn í þeirri helreið sem vinstri...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Mér líður ógeðslega illa en fæ ekki tíma hjá geðlækni fyrr en eftir hálft ár

Ég er svo geðveikur þegar ég er í skólanum, ég er bara í skólanum og get ekki gert neitt a...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Lítill ávinningur af skimun fyrir ristilkrabbameini

Árangur af skimun fyrir ristilkrabbameini er lítill séð frá lýðheilsusjónarmiði. Nýjar ran...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Er ekki nóg atvinnuleysi?

Ef Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra fær að ráða, þá fer störfum við íslenska bjórframl...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Best í heimi

Þegar ég reyndi að sigrast á nánast óyfirstíganlegu þvottafjalli heima hjá mér fór ég að h...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Brostnar vonir

Pyngjur landsmanna léttast og færri krónur eru eftir um hver mánaðamót. Norræn velferðarst...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Tveir og hálfur milljarður í sérstakar vaxtaniðurgreiðslur – það munar um minna

Tugþúsundir húseigenda um allt land fengu fjármuni frá ríkissjóði inn á bankareikninga sín...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Þungur kross brotaþola

Ung stúlka tilkynnir nauðgun í miðborg Reykjavíkur. Í umræðum um málið á netinu lætur ungu...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 12:04

Vændi og mansal er ekki það sama

Í daglegri umræðu hefur mansali og vændi oft verið blandað svo saman að fæstir kunna skil ...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 12:00

Sýndarveruleikinn

Hvað skiptir máli í lífinu? Nú, ég held auðvitað að þetta sé sjálf lífsgátan. Ég myndi nef...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Þrenns konar veiðistjórn

Dómur Landsdóms frá 23. apríl 2012 setur ný viðmið og mörk í þjóðlífinu. Þar virðist horfi...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Af hverju látum við ekki útgerðarmennina sjálfa ákveða hæfilegt veiðigjald?

Útvegsmannafélagið beinir því í auglýsingum til sveitarstjórna að leggjast gegn kvótafrumv...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Við borgum ekki

Ég veit ekki nema gleymdur sé nú sífelldur áróður Suðurnesjamanna um að þáverandi umhverfi...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Lyktarmengun kallar á tafarlausar aðgerðir

Nýverið var haldinn íbúafundur í Mosfellsbæ um lyktarmengun frá urðunarstað höfuðborgarsvæ...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Um smálán

Allt frá því að smálánafyrirtæki hófu innreið sína á íslenskan lánamarkað höfum við leitað...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Gullgæsin

Eitt mesta hitamálið þessa dagana er nýjasta kvótafrumvarp ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðard...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Tölvuleikir breyta þér ekki í skrímsli

Ég rakst á forsíðufrétt á Mbl.is með fyrirsögninni "Spilaði tölvuleik í heilt ár“....  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Mannleg meindýr

Menn eru misjafnir og samskipti þeirra með ýmsu móti. Sem betur fer er meirihlutinn gott f...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Bann við mismunun

Jafnrétti er hornsteinn mannréttinda, sá grunnur sem viðhorf okkar og samfélag byggja á. A...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Markadurinn
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / "Hækkun í hafi“?