Lífið

Fær ekki áfall yfir velgengninni

„Þetta var fyrsta útgefna lagið mitt og ég bjóst aldrei við neinu enda best að hafa engar óraunhæfar væntingar,“ segir Júníus Meyvant.
„Þetta var fyrsta útgefna lagið mitt og ég bjóst aldrei við neinu enda best að hafa engar óraunhæfar væntingar,“ segir Júníus Meyvant. MYND/SIGRÍÐUR UNNUR LÚÐVÍKSDÓTTIR
Einn af sigurvegurum Íslensku tónlistarverðlaunanna sem veitt voru um síðustu helgi var söngvarinn Júníus Meyvant. Hann var bæði valinn besti nýliðinn í flokknum popp og rokk auk þess sem lag hans, Color Decay, var valið lag ársins í flokknum popp. Þrátt fyrir miklar vinsældir lagsins, en það komst meðal annars á topp vinsældalista Rásar 2 síðasta sumar, er Júníus tiltölulega óþekktur hér á landi enda á hann eftir að gefa út sína fyrstu plötu.

Júníus, sem heitir reyndar réttu nafni Unnar Gísli Sigurmundsson, fæddist í Vestmannaeyjum árið 1982 og verður því 33 ára í haust. Hann segist hafa byrjað seint að fikta við tónlist enda áttu myndlist og hjólabretti hug hans allan fram að því. „Fyrsta hljómsveitin sem ég var í hét Jack London og innihélt hún aðra góða drengi. Við spiluðum einhvers konar rokk en ég bjó í Reykjavík á þeim árum. Leiðir okkur skildi þegar ég flutti til Vestmannaeyja og þá tók tónlistin allt aðra stefnu. Þá var ég orðinn einn og hóf að semja tónlist sem ég sjálfur vildi gera.“



Samið í þvottahúsinu

Kveikjan að laginu vinsæla, Color Decay, kom á ólíklegum stað segir Júníus en þá var hann staddur í þvottahúsinu að brjóta saman þvott. „Það gerist ekki oft að ég brjóti saman þvott enda er ég ömurlegur í því verkefni. Ég hóf að raula eitthvað og eins og gerist oft þá spratt eitthvert lag fram í hausnum á mér. Þannig verða reyndar oft bestu lögin til; þegar maður er ekki að rembast heldur lætur þau fæðast náttúrulega og áreynslulaust.“

Hann segir lagið fjalla um stað og stund og að lifa í núinu. „Ef rýnt er í textann, og sérstaklega viðlagið, er ég að fjalla um tilgangsleysi sumra hluta sem maður tekur sér fyrir hendur. Það er nefnilega svo margt sem truflar mann í þessu lífi en skiptir í raun og veru engu máli.“ Auk þess að ná toppsæti vinsældalista Rásar 2 varð lagið fjórða vinsælasta lag ársins 2014 hjá sömu útvarpsstöð.

Júníus Meyvant var valinn besti nýliðinn í flokknum popp og rokk auk þess sem lag hans, Color Decay, var valið lag ársins í flokknum popp.MYND/MUMMI LÚ
Hann segir það hafa verið sérkennilega en um leið skemmtilega tilfinningu að sjá lag sitt klifra jafnt og þétt upp vinsældalistann. „Þetta var fyrsta útgefna lagið mitt og ég bjóst aldrei við neinu enda best að hafa engar óraunhæfar væntingar, þá verður maður ekki fyrir vonbrigðum. Nú er ég skriðinn yfir þrítugt og því ekkert að fá taugaáfall yfir þessu öllu saman. Hefði ég hins vegar verið 20 ára hefði dramatíkin sjálfsagt verið öllu meiri. Núna er ég bara rólegur og hef gaman af þessu enda væri líf mitt frekar grunnt ef ég væri að semja tónlist með það eitt í huga að komast á topp vinsældalista.“

Þrátt fyrir miklar vinsældir Color Decay í fyrra hefur Júníus haldið fáa tónleika hér á landi. „Sumarið fór mikið í að undirbúa tónleikana á Iceland Ariwaves en þar kom ég fram með stórri hljómsveit á KEX hosteli. Tónleikarnir tókust vel og viðtökur voru góðar. Skömmu eftir Airwaves eignaðist ég dóttur og lagðist í dvala yfir jólin og fram í janúar. Nú er ég kominn á skrið aftur en hef þó undanfarna mánuði tekið eitt og eitt gigg en þá bara einn með gítarinn.“

Júníus er bókaður á tónlistarhátíðina Secret Solstice sem haldin verður í Laugardal í júní og svo aftur á Airwaves í nóvember. „Ég er kominn með umboðsskrifstofu erlendis sem er að bóka mig á tónlistarhátíðir og aðra viðburði. Ég mun til dæmis koma fram á Spot Festival í Danmörku um mánaðamótin apríl og maí. Þetta er svona bransahátíð í ætt við Airwaves. Svo fjölgar þessu nú væntanlega eitthvað þegar líður á árið.“

Plata á árinu

Aðspurður um frekari útgáfu segir Júníus ekki vera komna endanlega niðurstöðu í það mál. „Ég stefni þó á að gefa út fjögurra laga plötu fyrir sumarið þótt fleiri lög verði tilbúin. Vonandi kemur svo stór plata út seinni part árs. Lögin sem ég er að vinna núna eru af svipaðri stærðargráðu og Color Decay. Svo eru líka nokkur lágstemmdari lög en nýju lögin eru þó frekar stærri og litríkari lög en minni, einhvers konar stúdíógeðveiki.“

En hvernig skyldi Júníus upplifa tónlistarbransann eftir að komast svo rækilega í sviðsljósið rúmlega þrítugur? „Tónlistarsenan á Íslandi er jafn breytileg og veðrið hér á landi. Sjálfur upplifi ég tónlistina ekkert öðruvísi þótt ég sé kominn í eitthvert sviðsljós. Íslensk tónlist er oft frábær en líka síður spennandi á köflum. Umhverfið er að verða betra að mínu mati en tónlistarmenn mættu vera betur borgaðir í sumum verkefnum hér heima upp á að geta lifað á tónlistarsköpun sinni.“

Í dag er Júníus tveggja barna faðir og búsettur í Reykjavík ásamt fjölskyldu sinni. „Dagsdaglega er ég þræll tónlistar í hljóðverinu þar sem ég reyni að klára fyrstu plötuna mína. Í lok vinnudags fer maður heim og sinnir fjölskyldunni. Þetta er það sem ég sinni mest þessa dagana; klára plötuna, faðma konuna og gefa börnunum mat.“

Hægt er að hlusta á lagið Color Decay á YouTube, soundcloud.com, Spotify og víðar. Tónleikana á KEX hosteli má einnig nálgast í heild sinni á YouTube.

Nánari upplýsingar um listamanninn er að finna á juniusmeyvant.com og á Facebook undir juniusmeyvantmusic.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×