Lífið

„Ég hafði aldrei hugsað þetta sem Lion King-atriði“

Guðný Hrönn skrifar
Til vinstri má sjá Davíð Þór halda á Huldu Guðnýju á meðan mamman, Hólmfríður Berentsdóttir, fylgist með. Til hægri má sjá Rafiki halda á Simba litla.
Til vinstri má sjá Davíð Þór halda á Huldu Guðnýju á meðan mamman, Hólmfríður Berentsdóttir, fylgist með. Til hægri má sjá Rafiki halda á Simba litla.
Davíð Þór Jónsson, sóknarprestur í Laugarneskirkju, hefur undanfarið vakið lukku hjá Lion King-aðdáendum í skírnarathöfnum. Hann hefur nefnilega vanið sig á að lyfta barninu sem verið er að skíra upp fyrir höfuð í lok athafnarinnar. Þessi gjörningur minnir óneitanlega á eitt þekktasta atriði teiknimyndarinnar Lion King frá árinu 1994, þegar Rafiki sýnir öllum dýrunum í skóginum Simba litla.

Spurður út í gjörninginn segir Davíð: „Þetta er ekkert sem ég fann upp, ég var einu sinni í skírn hjá Erni Bárði Jónssyni og að lokinni skírninni fékk hann barnið í fangið og tók svona Rafiki-senu.“

„Ég tengdi það nú ekkert við Lion King, mér fannst þetta bara fallegt atriði svo ég vandi mig á að gera þetta sjálfur.“

„Það var svo bara fyrir nokkrum dögum sem eitt foreldri þakkaði mér fyrir athöfnina og sagði: „Mér fannst sérstaklega skemmtilegt Lion King-atriðið í lokin.“ Ég hafði aldrei hugsað þetta sem Lion King-atriði og ég skildi ekki alveg hvað hann átti við. Þetta er bara eitthvað sem ég sá kollega gera og fannst virka vel,“ segir Davíð og hlær.

Davíð þykir viðeigandi að nota þessa aðferð til að kynna barnið sem verið er að skíra fyrir fólki. „Barnið er miðpunktur skírnarinnar og þá er gott að enda athöfnina á að sýna söfnuðinum barnið, aðalatriðið. Eins og alltaf þegar fólk er tekið inn í eitthvert nýtt samfélag, nýjan hóp, þá er fólki stillt upp og kynnt fyrir öllum.“

Davíð segir að í skírnarathöfnum fái prestar oft svigrúm til að slá á létta stengi og gera eitthvað sniðugt. „Skírnir eru svo miklar fjölskyldu­athafnir þannig að maður gerir þetta bara eftir því hvernig stemningin er.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×