"Ég get ekki lifað án þess að dansa“ Baldvin Þormóðsson skrifar 21. júlí 2014 10:18 Klavs segir dansnámið á Íslandi hafa bætt sig til muna. mynd/sunneva ása weisshappel „
Mér standa allar dyr opnar en það er bara peningaleysi sem stendur í vegi fyrir mér,“ segir lettneski dansnemandinn Klavs Liepins en hann stundar nám í Listaháskóla Íslands og stefnir að því að útskrifast af dansbraut skólans árið 2016. Klavs hefur átt í erfiðleikum með að fá námslán frá heimalandi sínu og vinnur því á næturnar til þess að eiga fyrir uppihaldskostnaði. „Ég starfa sem dansari, danshöfundur og vinn sem barþjónn þar sem ég reyni að taka eins margar vaktir og ég get en launin duga bara fyrir leigu og mat,“ segir Klavs sem á því ekki nóg fyrir skólagjöldunum í Listaháskólann. „Ég hef bara verið á Íslandi í eitt ár en Listaháskólinn hefur breytt mér og danstækninni svo mikið á stórkostlegan hátt,“ segir ungi dansarinn sem hóf dansferil sinn 19 ára gamall og hefur síðan stundað nám í þremur skólum en áður en hann kom til Íslands stundaði hann dansnám við Listaháskóla Lettlands. „Ég get ekki lifað án þess að dansa og mig langar svo mikið til þess að halda áfram að læra hér.“ Klavs er virkilega áhugasamur um dansinn en auk þess semur hann tónlist og hefur verið í samstarfi við marga ólíka listamenn og vinnur mikið að svonefndum vídeóverkum þar sem hann semur dansinn fyrir verkið og tónlistina undir. Hann fór af stað með hópsöfnun á netinu til þess að geta haldið áfram námi sínu í Listaháskólanum og geta áhugasamir kynnt sér hinn efnilega Klavs á heimasíðu Go Fund Me.
Mest lesið Nefnd í höfuðið á tveimur mikilvægum konum í lífi þeirra Lífið Borgarstjóri og frú tóku veislustjórnina að sér Lífið Nýtt upphaf Margrétar: „Búin að heita þessu nafni í rúma viku“ Lífið Sophia Bush kemur út úr skápnum Lífið Grínari selur íbúð í Vesturbænum Lífið Aron passaði varla inn í bílinn Lífið Will Smith hrifinn af akureyrsku hjartaljósunum Lífið Fágæt og falleg eign við Flókagötu Lífið „Hann var langt á undan sinni samtíð“ Lífið Logi Geirs og Inga Tinna eiga von á barni Lífið Fleiri fréttir Ætlað að auka umræðu og sýnileika leiðsöguhunda Nýtt upphaf Margrétar: „Búin að heita þessu nafni í rúma viku“ Borgarstjóri og frú tóku veislustjórnina að sér Fágæt og falleg eign við Flókagötu Aron passaði varla inn í bílinn Nefnd í höfuðið á tveimur mikilvægum konum í lífi þeirra Grínari selur íbúð í Vesturbænum Sophia Bush kemur út úr skápnum „Hann var langt á undan sinni samtíð“ Will Smith hrifinn af akureyrsku hjartaljósunum Ebba Katrín valin bæjarlistamaður Hafnarfjarðar Logi Geirs og Inga Tinna eiga von á barni Varð móðir sextán ára Heyrt kjaftasögurnar um eldri mennina sem stýri henni Japaninn sló heimsmet í Hlíðarfjalli Lekker hæð listakonu til sölu „Stundum finnst mér ég getað sigrað heiminn“ Svakalegasta atvinnuumsókn sem sést hefur á FM957 Vöknuðu fyrir allar aldir til að gera aðra atlögu Björgólfur og Skúli í stuði í Feneyjum Heimafæðing Örnu Ýrar: „Ekki eins hræðilegt og margir halda“ Suzuki mun flytja inn í höll Björgólfs Stefnir Megan Thee Stallion fyrir meint áreiti á vinnustað Flugfreyjuhattar Icelandair frá tískurisanum Balenciaga fá nýtt líf Ekki lengur smeykur við að deila kastljósinu með Katrínu Jón Jónsson selur glæsihús á Seltjarnarnesi Kynferðislegt ofbeldi: Kynlíf eftir áföll Karlakórinn Esja tók frægasta slagara Backstreet Boys Flott flutti ódauðlega slagara með Sálinni og Ásgeiri Trausta Myndaveisla: Pattra og Gugusar hressastar í drykkjarpartýi Sjá meira