Tónlist

"Ég elska þig Mark“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Tónlistarmaðurinn og upptökustjórinn Mark Bell lést í síðustu viku. Þetta tilkynnti útgáfufyrirtæki hans, Warp Records, í gær.

„Það er með mikilli sorg í hjarta að við tilkynnum ótímabært andlát Mark Bell í LFO sem lést í síðustu viku. Fjölskylda og vinir Marks biðja um að einkalíf þeirra verði virt á þessum erfiða tíma,“ stendur í yfirlýsingu frá Warp Records. 

Mark stofnaði raftónlistargrúbbuna LFO árið 1988 en sveitin varð mjög mikill áhrifavaldur í reifsenunni. Þá var Mark líka þekktur upptökustjóri og starfaði mikið með Björk Guðmundsdóttur á ferlinum, meðal annars að plötunum Homogenic, Volta og Biophilia.

Björk birtir mynd af sér og Mark á Facebook-síðu sinni í dag með kveðju til vinar síns.

„Ég elska þig Mark og ég er svo lánsöm að hafa búið til svona mikla tónlist með þér,“ skrifar Björk og bætir við:

„Ég vona að þú sért með góða hátalara, hvar sem þú ert.“








Fleiri fréttir

Sjá meira


×