Lífið

"Ákveðin særing til að koma djöflunum út“

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Erna sér fegurðina í ljótleikanum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Erna sér fegurðina í ljótleikanum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Danslistakonan Erna Ómarsdóttir hefur verið valin af sameiginlegri dómnefnd RIFF og fulltrúum vídeóverkahátíðarinnar Hors Pistes til þess að sýna myndbandslistaverk sitt á Pompidou-safninu í París á næsta ári. Myndin verður frumsýnd á RIFF í Norræna húsinu í byrjun október.

Verkið er ljóðræn heimildarmynd um störf listahópsins Shalala sem Erna skipar ásamt Valdimari Jóhannssyni tónlistarmanni. Hópurinn hefur unnið mikið með öskur í gegnum tíðina. „Þetta er ákveðin særing til að koma djöflunum út,“ segir Erna en hún segist sjá fegurðina í ljótleika öskursins.

Shalala-hópurinn bjó meðal annars til það sem kallast „The Black Yoga Screaming Chamber“, öskurklefa sem þau gáfu bæði Alþingi og borgarstjórn Reykjavíkur. Klefinn var uppi í mánuð í Ráðhúsinu að sögn Ernu en Alþingi hefur ekki enn komið honum í notkun.

„Það er staður þar sem menn myndu hafa gott af því að hafa öskurklefa nálægt sér,“ segir hún.

Á Menningarnótt mun Shalala sýna listir sínar. Sýningin FOLK? I do (not) agree! verður í gangi frá 13.00 til 18.00 í Iðnó og tekur Shalala þátt í henni ásamt íslenskum og pólskum sviðslistamönnum. Klukkan 14.00 verður svokallað „Screaming Spa“ í Kling og Bang þar sem verður „íslensk heitapottsstemning“ og menn geta látið nudda sig með öskurhljóðbylgjum. Klukkan 15.30 í Iðnó mun Erna síðan leiða tíma í „Metal Aerobics“, líkamsrækt sem blandar eróbikki við þungamálmstónlist. „Menn geta fengið smá aukaorkulosun þar,“ segir Erna létt í bragði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×