Golf

Scottie Scheffler fer fyrir dóm­stóla í byrjun júní

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Scottie Scheffler, efsti kylfingur á heimslista, á yfir höfði sér fjórar ákærur
Scottie Scheffler, efsti kylfingur á heimslista, á yfir höfði sér fjórar ákærur Vísir/Skjáskot

Scottie Scheffler var ákærður í fjórum liðum og átti að mæta í dómsalinn í dag en málsmeðferð kylfingsins hefur verið frestað til 3. júní.

Scheffler var á föstudag handtekinn á leið sinni að Valhalla vellinum þar sem PGA mótið fór fram um helgina.

Fyrr um morguninn varð banaslys, sem Scheffler kom ekkert að en leiddi til þess að keppni var frestað um klukkustund. Mikil umferðarteppa myndaðist vegna slyssins og Scheffler reyndi að forðast teppuna og keyrði framhjá henni.

Lögreglan handtók Scheffler vegna tilburða hans í umferðinni, setti hann í handjárn og keyrðu með hann á brott í lögreglubíl.

Scheffler var ákærður í fjórum liðum.

  • Annars stigs líkamsárás á lögreglumann
  • Glæpsamleg hegðun af þriðju gráðu
  • Gáleysislegur akstur
  • Leiðbeiningar lögreglunnar virtar að vettugi

Sjálfur hefur hann alfarið neitað sök og sagði málið allt saman byggt á misskilningi.

Lögreglan í Kentucky gaf frá sér skýrslu um málið þar sem sagt er að lögregluþjónninn sem stoppaði Scheffler hafi hlotið áverka vegna líkamsárásar Scheffler.

Eins og áður segir mun málið fara fyrir dómstóla þann 3. júní.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×