Golf

McIl­roy í bar­áttunni þrátt fyrir yfir­­vonandi skilnað

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Xander Schauffele leiðir að loknum fyrsta hring á PGA-meistaramótinu.
Xander Schauffele leiðir að loknum fyrsta hring á PGA-meistaramótinu. Patrick Smith/Getty Images

Xander Schauffele leiðir eftir fyrsta hring PGA-meistaramótsins í golfi sem nú fer fram á Valhalla-golfvellinum í Louisville. Rory McIlroy er í toppbaráttunni þrátt fyrir þær fregnir að hann sé að skilja við konu sína.

Schauffele lék manna best á fyrsta hring mótsins en hann lék fyrstu 18 holur mótsins á samtals 9 höggum undir pari. Frábær árangur hjá þessum þrítuga Bandaríkjamanni sem hefur unnið sjö mót á ferlinum til þessa og er sem stendur í 3. sæti heimslistans í golfi. 

Samlandar hans Sahith Theegala og Tony Finau eru jafnir í 2. sæti á sex höggum undir pari en hvorugur er á topp 10 lista PGA-mótaraðarinnar og verður forvitnilegt að sjá hvort þeir haldi dampi á morgun.

Þar á eftir kemur Norður-Írinn Rory og hinn lítt þekkti Robert MacIntyre frá Skotlandi en sá situr í 84. sæti PGA-listans. 

Rory hefur einokað fyrirsagnirnar í aðdraganda mótsins en eins og Vísir greindi frá er hann nýbúinn að sækja skilnað frá eiginkonu sinni Ericu Stoll. Hann neitaði þó að svara spurningum um skilnaðinn á blaðamannafundi fyrir keppni dagsins.

Norður-Írinn vann síðasa PGA-mótið sem fram fór á Valhalla-vellinum en það var fyrir áratug síðan. Hann vonast án efa til að endurtaka leikinn í ár.

Annar dagar PGA-meistaramótsins hefst klukkan 18.00 og verður í beinni útsendingu Stöðvar 2 Sport 4.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×