Unnið með bönkunum í erlendri fjármögnun að hafa tekið yfir íbúðalánin
![Efnahagsreikningur og rekstur stóru bankanna er með allt öðrum – og betri – hætti en hann var fram að árinu 2019. Þá höfðu þeir farið „offari“ í útlánum til fyrirtækja og vanmetið áhættu, að sögn Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra.](https://www.visir.is/i/EC73BE730FB964B00B580A8AC200D6C296E5218F150B12182DB45EB778B1BEE4_713x0.jpg)
Efnahagsreikningur og rekstur viðskiptabankanna hefur tekið stakkaskiptum frá 2019, þegar þeir voru í raun bara „fyrirtækjabankar“ að sögn seðlabankastjóra, og viðskiptalíkanið er orðið mun sterkara eftir að bankarnir tóku nánast yfir íbúðalán heimilanna sem hefur unnið með þeim í erlendri markaðsfjármögnun. Hann segir að hagræðið sem hafi náðst með þeirri breytingu sé komin til vera og öll rök hnígi að því að lífeyrissjóðir einblíni á að kaupa sértryggð bankanna fremur en að standa sjálfur í beinum lánveitingum.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/2415CCF95C50261AEA269239B507A61D548D51548569044D6CB41C7DBA5A75EB_308x200.jpg)
„Mun taka tíma“ að byggja upp heimamarkað fyrir ótryggðar útgáfur bankanna
Fjármálakerfið hefur sýnt að það er sumpart í sterkari stöðu en margir bankar erlendis, með því að geta þolað tímabundið hátt vaxtastig og meira fjármálalegt aðhald, og vaxtaálagið á erlendar skuldabréfaútgáfur bankanna hefur lækkað skarpt að undanförnu. Seðlabankastjóri segir að horft fram á við megi hins vegar áfram búast við sveiflum í vaxtakjörum bankanna á erlendum mörkuðum en fjarvera íslenskra stofnanafjárfesta þegar kemur að kaupum á ótryggðum útgáfum stendur þeim fyrir þrifum.
![](https://www.visir.is/i/B19E0C4B17897393D4A729BEE3BEEE722123DF85112AF37E3D3BFDF9C422AAF2_308x200.jpg)
Óljóst hvernig SÍ vill taka á umsvifum lífeyrissjóða á lánamarkaði
Æðstu stjórnendur Seðlabanka Íslands hafa síðustu misserum kallað eftir því að regluverkinu í kringum lífeyrissjóði verði breytt í samræmi við aukin umsvif sjóðanna á húsnæðislánamarkaði og hefur jafnvel komið fram í máli seðlabankastjóra að honum hugnist ekki þátttaka lífeyrissjóða á markaðinum. En þrátt fyrir að stjórnendur bankans hafi haft uppi stór orð um auknar kröfur gagnvart lífeyrissjóðum er ekki ljóst hvernig þeir vilja taka á lánastarfsemi sjóðanna nú þegar hlutdeild þeirra á markaðinum fer aftur vaxandi.