Set velti fimm milljörðum og sett í söluferli
![„Eigendur og stjórn Sets hafa ákveðið að setja félagið í söluferli og er stefnt að sölu félagsins á þessu ári eða því næsta. Með nýju eignarhaldi er lagður grundvöllur að því að nýta þau fjölmörgu tækifæri til vaxtar sem búa í félaginu,“ segir Bergsteinn Einarsson, forstjóri Sets.](https://www.visir.is/i/ECC180AD06F6A0C04EB3D970610438EB35DC3DF5A7EB1E356CFDE80510EC3A57_713x0.jpg)
Fjölskyldufyrirtækið Set á Selfossi, sem sérhæfir sig í fjölbreyttri starfsemi á lagnasviði, hefur verið sett í söluferli. Set velti um fimm milljörðum króna í fyrra og jukust tekjur um 33 prósent á milli ára. Að auki voru tekjur erlendra félaga innan samsteypunnar samanlagt um 2,5 milljarðar króna árið 2023.