Innherji

Yfir­taka á Marel gæti „heft“ upp­færslu á markaðnum hjá vísi­tölu­fyrir­tækjum

Hörður Ægisson skrifar
Beðið er nú eftir viðbrögðum frá stjórn Marels við hinni óskuldbindandi viljayfirlýsingu JBT frá því fyrr í þessum mánuði en hún hefur sagst ætla að fara yfir og meta tilboðið af „kostgæfni með hliðsjón af langtímahagsmunum félagsins og allra hluthafa þess.“
Beðið er nú eftir viðbrögðum frá stjórn Marels við hinni óskuldbindandi viljayfirlýsingu JBT frá því fyrr í þessum mánuði en hún hefur sagst ætla að fara yfir og meta tilboðið af „kostgæfni með hliðsjón af langtímahagsmunum félagsins og allra hluthafa þess.“

Verði af yfirtöku bandaríska fyrirtækisins JBT á Marel er hætt við því að það myndi „hefta“ frekari hækkun á gæðaflokkun íslenska markaðarins hjá alþjóðlegum vísitölufyrirtækjum, að sögn forstjóra Kauphallarinnar, enda sé ólíklegt að þau myndu telja íslensku kauphöllina vera heimamarkað sameinaðs félags. Stjórnendur Kauphallarinnar hafa haft væntingar um að markaðurinn gæti fengið uppfærslu í flokk nýmarkaðsríkja hjá MSCI á árinu 2024.


Tengdar fréttir

Yfirtökuboðinu var ætlað að hagnast á veikri stjórn Marels og erfið­leikum Eyris

Evrópski vogunarsjóðurinn Teleios Capital Partners, einn stærsti erlendi fjárfestirinn í hluthafahópi Marels með 3,3 prósenta hlut, gagnrýnir harðlega stjórn fyrirtækisins fyrir að hafa ekki gætt að umboðsskyldu sinni gagnvart öllum hluthöfum og segir vanhugsaðar ákvarðanir þáverandi stjórnenda Eyris valda því að fjárfestingafélagið rambi nú á barmi gjaldþrots. Sjóðurinn styður ákvörðun stjórnar að hafna mögulegu tilboði John Bean Technologies en segir þörf á skýrleika um eignarhald Marels, sem hafi ekki reynst farsælt með Eyri sem aðaleigenda, til framtíðar litið.

Lífeyrissjóðir voru ekki áhugasamir um tilboð JBT í Marel

Stjórnendur lífeyrissjóða, sem Innherji ræddi við, voru ekki áhugasamir um óskuldbindandi tilboð bandaríska fyrirtækisins John Bean Technologies Corporation í Marel. Þeim þótti gengið of lágt og óspennandi að fá greitt að stórum hluta með hlutabréfum í erlendu félagi. Gengi Marels lækkað um allt að nærri fjögur prósent í fyrstu viðskiptum dagsins eftir að stjórn þess hafnaði tilboðinu. Hún er þó opin fyrir betri tilboðum í félagið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×