Innherji

Meiri á­hættu­sækni kallar á stífari kröfur um starf­semi líf­eyris­sjóða

Hörður Ægisson skrifar
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri undirstrikar að forsenda fyrir því að lífeyrissjóðirnir geti haldið áfram að byggja upp eignasafn sitt erlendis sé að Ísland sé með viðskiptaafgang svo að fjárfestingar þeirra verði ekki til þess að raska jafnvægi á gjaldeyrismarkaði.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri undirstrikar að forsenda fyrir því að lífeyrissjóðirnir geti haldið áfram að byggja upp eignasafn sitt erlendis sé að Ísland sé með viðskiptaafgang svo að fjárfestingar þeirra verði ekki til þess að raska jafnvægi á gjaldeyrismarkaði.

Breyttar og áhættusamari áherslur í fjárfestingum lífeyrissjóðakerfisins, sem er að stækka ört, eru ekki „óeðlilegar“ en þær þýða að sama skapi að sjóðirnir þurfa að lúta stífari kröfum um meðal annars áhættustýringu, að sögn seðlabankastjóra. Hann telur gagnrýni á að rekstrarkostnaður sjóðanna sé of mikill um margt vera ósanngjörn.


Tengdar fréttir

Þurfum að hafa „augun opin“ fyrir á­hættu við upp­gang skugga­banka­kerfis

Umfangsmiklar breytingar á skipuriti og fækkun sviða sem sinna fjármálaeftirliti, meðal annars í þeim tilgangi að fá betri yfirsýn með áhættuþáttum í starfsemi þeirra sem sinna útlánum, eru viðbragð við ákalli tímans um meiri sérhæfingu og mun gefa eftirlitinu meiri slagkraft, að sögn seðlabankastjóra. Þótt því fylgi kostir að fjármálaleg milliganga sé að færast til ýmissa sjóða, stundum nefnt skuggabankakerfi, þá er mikilvægt að hafa „augun opin“ fyrir þeirri áhættu sem þær breytingar skapa.

AGS varar við hættu á pólitískum þrýstingi í fjár­mála­eftir­lits­nefnd

Nefndarseta fulltrúa frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu í fjármálaeftirlitsnefnd Seðlabankans getur skapað hættu á pólitískum þrýstingi, að mati Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, sem hefur gert athugasemdir við þá skipan mála í samskiptum sínum við stjórnvöld en sjóðurinn vinnur nú að viðamikilli úttekt á íslenska fjármálakerfinu. Skrifstofustjóri ráðuneytisins, sem er í nefndinni og sóttist eftir því að verða varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits, dró umsókn sína til baka sama dag og ráðherra skipaði í embættið. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×