Sameinað verslunarfélag væri með yfir sex milljarða í rekstarhagnað
![SKEL fjárfestingarfélag áætlar að velta Samkaupa geti aukist umtalsvert með verslunareiningum Heimkaupa og mikil samlegðartækifæri séu fólgin í sameiningu þessara eininga.](https://www.visir.is/i/0A0275345EF6CE9B34D3E14CDB0AEC261912557344E33C0D4844381C5230DB76_713x0.jpg)
Áætlað er að EBITDA-hagnaður sameinaðs félags Samkaupa og Heimkaupa/Orkunnar hafi verið vel yfir sex milljarðar króna í fyrra, að mati Skeljar fjárfestingafélags. Það myndi jafngilda tæplega níu prósenta framlegðarhlutfalli, litlu meiri borið saman við Haga.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/D2E9808D35E01B80E5E7478A7BBE9252A882DEDA45A8EFED2313C877FE2A4F18_308x200.jpg)
Sameining við Samkaup gæti „hrist upp“ í smásölumarkaðnum
Mögulegur samruni Orkunnar og Heimkaupa við Samkaup, sem er sagður vera rökréttur, gæti „hrist nokkuð upp í smásölumarkaðnum“ og ljóst að sameinað félag yrði nægjanlega stórt til að eiga erindi á Aðalmarkað í Kauphöllinni, að mati greinenda. Á meðan risarnir á markaði, Hagar og Festi, eru að stórum hluta í eigu lífeyrissjóða sem eru ekki ýkja virkir í stjórnun félaganna eru hluthafar Skel fjárfestingafélags, sem á Orkuna og Heimkaup, líklega „meira öskrandi á hliðarlínunni.“
![](https://www.visir.is/i/761DF63C064CBFA31CEEAF54DB0015BB11B9BAA9F4CB812742BC17F1DD28513E_308x200.jpg)
SKEL byggir upp stöðu í Samkaupum í aðdraganda skráningar á markað
Fjárfestingafélagið SKEL, sem á Orkuna og Heimkaup, hefur gengið frá kaupum á um fimm prósenta eignarhlut í smásölufyrirtækinu Samkaupum. Forstjóri SKEL segir yfirlýst áform Samkaupa um að fara með félagið á markað gera það að áhugaverðum fjárfestingarkosti.