Krónan stöðug þrátt fyrir áföll og fátt sem kallar á veikingu á næstunni
![Evran hefur haldist á þröngu bili í kringum 150 krónur samfellt um margra vikna skeið. Viðmælendur Innherja á gjaldeyrismarkaði benda sumir á að þessi stöðugleiki sé nokkuð á skjön við það sem oft heyrist um meintar sveiflur á krónunni.](https://www.visir.is/i/48CE6BE599D38CFC499C55D4729503EF7DB24378272E561F94BDA01FB5CB3499_713x0.jpg)
Krónan hefur sýnt styrk sinn með því að haldast afar stöðug í kringum gildið 150 á móti evrunni samfellt um margra mánaða skeið þrátt fyrir að ýmislegt hafi unnið á móti henni á liðnum vetri, að sögn gjaldeyrismiðlara. Væntingar eru um gengisstyrkingu horft inn í árið, sem endurspeglast að hluta í meiri framvirki gjaldeyrissölu, samhliða meðal annars mögulegu fjármagnsinnflæði við yfirtökuna á Marel en sumir vara við viðkvæmri stöðu eftir miklar launahækkanir sem hefur þrýst raungenginu á nánast sömu slóðir og fyrir heimsfaraldurinn.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/AEADE4F520A5FB07D23982F83680F1E002A78EEBFF6AD5705D4632BA5B618444_308x200.jpg)
Seðlabankastjóri segir þörf á betri upplýsingum um gjaldeyrismarkaðinn
Unnið er að því hjá Seðlabankanum að reyna afla ítarlegri og betri upplýsinga um heildarviðskipti á gjaldeyrismarkaði, að sögn seðlabankastjóra, og viðurkennir að bankinn hafi „ekki nægjanlega“ góða yfirsýn yfir þann markað. Framkvæmdastjóri lífeyrissjóðs líkir gjaldeyrispörun innan viðskiptabankanna við „stærstu skuggabankastarfsemi landsins“ og segir umfang lífeyrissjóða á gjaldeyrismarkaði minna en af er látið.
![](https://www.visir.is/i/A636717FBEE6A68FA089610A7A89496757526D44848E500CA49E42BE52FE7FEA_308x200.jpg)
Innflæði í ríkisbréf knúði Seðlabankann í nærri tíu milljarða gjaldeyriskaup
Á fyrstu vikum ársins hafa erlendir fjárfestar bætt við stöðu sína í löngum ríkisbréfum fyrir að lágmarki vel á annan tug milljarða króna. Seðlabankinn réðst í umfangsmikil gjaldeyriskaup síðastliðinn föstudag, þau fyrstu í meira en tuttugu mánuði, til að mæta miklu fjármagnsinnflæði þegar erlendur sjóður keypti stóran hluta alls útboðs ríkisins á óverðtryggðum bréfum.