Körfubolti

„Tel mjög vafa­samt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“

Hjörvar Ólafsson skrifar
Lárus Jónsson fer yfir málin með sínum mönnum
Lárus Jónsson fer yfir málin með sínum mönnum Vísir/Bára Dröfn

Lárus Jónsson var vitanlega sár og svekktur eftir sárgrætilegt tap Þórs Þorlákshafnar á móti Njarðvík í oddaleik liðanna í átta liða úrslitum Subway-deildar karla í körfubolta. Úrslitin réðust á síðasta andartaki framlengingarinnar þar sem Lárus og lærisveinar hans fengu rýting í hjartað. 

„Um leið og ég er svekktur með hvernig þetta endaði þetta þá er ég fyrst og fremst ofboðslega stoltur af liðinu og strákarnir mega vera stoltir af sjálfum sér fyrir frammistöðuna í þessu einvígi. Við göngum stoltir frá borði,“ sagði Lárus Jónsson, þjálfari Þórs Þorlákshafnar. 

„Hafandi sagt það þá er það mér efst í huga núna að ég tel sigurkörfuna í öllu falli mjög vafasama. Mér finnst vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma. Þorri fær boltann, setur hann niður og færir hann til hliðar áður en hann skýtur. 

Mér finnst hæpið að það sé hægt að gera það á 0,9 sekúndum en ef svo er þá bara er það svo. Ég væri hins vegar til í að þetta væri tímamælt til þess að hvort að þetta hafi verið lögleg karfa. En við breytum því aftur á móti ekki úr þessu. En þetta er svekkjandi, því er ekki að neita,“ sagði Lárus um sigurkörfu Þorvalds Orra Árnasonar. 

Aðspurður um hvort niðurstaða tímabilsins væri vonbrigði fyrir Þór Þorlákshöfn sagði Láurs að annað af tveimur markmiðum félagsins hafi náðst: „Við settum okkur tvö markmið fyrir veturinn. Annað var að verða Íslandsmeistari og hitt var að þróa og þroska Tómas Val Þrastarson.

Við náðum öðru markmiðinu sem er jákvætt. Það er svo annarra að dæma um hvort tímabilið hafi verið vonbrigði. Ég verð áfram þjálfari Þórs Þorlákshafnar á næstu leiktíð nema Jóhanna reki mig,“ sagði Lárus um nýlokið tímabil og framhaldið.

Tómas Valur Þrastarson spilaði vel í vetur. Vísir/Bára Dröfn



Fleiri fréttir

Sjá meira


×