Sport

Segir „mjög lík­legt“ að Guð­laug Edda komist á ÓL í París í sumar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Guðlaug Edda Hannesdóttir átti frábæra viku og nálgast nú sæti á Ólympíuleikunum í París í sumar.
Guðlaug Edda Hannesdóttir átti frábæra viku og nálgast nú sæti á Ólympíuleikunum í París í sumar. @eddahannesd

Sigurður Örn Ragnarsson, þjálfari íslensku þríþrautarkonunnar Guðlaugar Eddu Hannesdóttur, er mjög bjartsýnn á það að henni takist að tryggja sér farseðil á Ólympíuleikana í París í sumar.

Guðlaug Edda varð í öðru sæti á þríþrautarmóti á Filippseyjum í gær aðeins einni viku eftir að hún vann þríþrautarmót í Nepal.

Þetta gull og þetta silfur skila Guðlaugu Eddu dýrmætum stigum í baráttunni fyrir Ólympíusæti.

Sigurður Örn er á því að þessi árangur hafi aukið mikið líkurnar á að við eignumst okkar fyrstu þríþrautarkonu á Ólympíuleikum.

„Með árangrinum í dag í viðbót við sigurinn í Nepal um síðustu helgi þá er það orðið mjög líklegt að Guðlaug Edda komist á Ólympíuleikana í París í sumar,“ skrifaði Sigurður Örn á samfélagsmiðla sína.

„Ekkert er öruggt í þessu en allt er nú orðið miklu líklegra,“ skrifaði Sigurður.

„Ég sem þjálfari er ótrúlega stoltur en Þríþrautarsambandið réði mig sem þjálfara hennar í nóvember 2023 til að hjálpa til að gera þetta að veruleika,“ skrifaði Sigurður.

„Það enn mikil vinna framundan í að undirbúa sig fyrir stóra sviðið en við erum á leiðinni þangað, eina viku í einu,“ skrifaði Sigurður.

Færsla Sigurðar Arnar Ragnarssonar á Instagram í gær.@sigurdurragnars_tri



Fleiri fréttir

Sjá meira


×