Körfubolti

DeAndre Kane sleppur við bann og spilar í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
DeAndre Kane missti algjörlega stjórn á sér í Smáranum á þriðjudagskvöldið.
DeAndre Kane missti algjörlega stjórn á sér í Smáranum á þriðjudagskvöldið. Vísir/Hulda Margrét

Grindvíkingar munu njóta krafta DeAndre Kane í kvöld í öðrum leik sínum á móti Keflavík í undanúrslitaeinvígi félaganna í úrslitakeppni Subway deildar karla í körfubolta. Kane fer ekki í bann en fær peningasekt fyrir hegðun sína í fyrsta leiknum.

Mikil umræða skapaðist um þann langa tíma sem aganefndin tók sér í að vinna málið enda þurftu bæði Grindavík og Keflavík að undirbúa gríðarlega mikilvægan leik án þess að vita hvort Kane mætti spila eða ekki.

Aga- og úrskurðarnefnd Körfuknattleikssambands Íslands hefur loksins tekið mál hans fyrir og skilað niðurstöðu sinni. Hana má finna á heimasíðu KKÍ og hér fyrir neðan.

  • Agamál 54/2023-2024
  • Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, DeAndre Kane, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Grindavíkur og Keflavíkur, úrslitakeppni Subwaydeildar karla, sem fram fór þann 30. apríl 2024.
  • Með vísan til ákvæðis l. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði aukinheldur greiða sekt að fjárhæð 50.000 kr. vegna óprúðmannlegrar framkomu sinnar í kjölfar brottvísunar úr áðurnefndum leik.

Kane sleppur við leikbann og fær því aðeins áminningu vegna háttsemi sinnar. Hann þarf hins vegar að greiða fimmtíu þúsund krónur í sekt vegna óprúðmannlegrar framkomu sinnar í kjölfar brottvísunar úr áðurnefndum leik.

Kane var þarna vísað úr húsi eftir að hafa fengi bæði óíþróttamannslega villu og tæknivillu í leiknum.

Það sem kom Kane í vandræði voru þó ekki óíþróttamannslega villan sem hann fékk eða tæknivillan sem hann fékk svo fyrir leikaraskap. Viðbrögð hans við seinni dómnum, og að þurfa þar með að yfirgefa völlinn eru ástæðan fyrir því að málið endaði inn á borð aganefndar.

Kane var heillengi að yfirgefa salinn, sló í sjónvarpsmyndavél og hlið á leiðinni út og hreytti einhverju í átt að varamannabekk Keflavíkur. Þetta gerði Kane fyrir framan nefið á Jóni Bender, eftirlitsmanni leiksins.

Kane var búinn að missa af einum leik í þessari úrslitakeppni vegna leikbanns en hann var heldur ekki með í öðrum leiknum á móti Tindastól í átta liða úrslitunum. Grindavík vann þann leik þó án hans.

Ljóst er að Keflvíkingar verða án lykilmanns í leiknum vegna meiðsla Remys Martin sem reif hásin fyrr í þessum saman leik. Hann verður ekki meira með í þessari úrslitakeppni.

Hér fyrir neðan má sjá atvikið þegar Kane missti stjórn á skapi sínu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×