Bitcoinsjóðir stærri en lífeyriskerfið en prófessor segir hnignunarfasa að hefjast
![Jón Daníelsson, hagfræðiprófessor við LSE, og Daði Kristjánsson, framkvæmdastjóri Visku rafmyntasjóðinn, hafa ólíka sýn á framtíð Bitcoin.](https://www.visir.is/i/F1E17EE555D873382A3C30130D8837F1D50E9C16D09CB82CA5BA46A5FDE298D1_713x0.jpg)
Umfang bitcoin kauphallarsjóða, sem hafa einungis verið starfræktir í tvo mánuði, er orðið meira en allt íslenska lífeyriskerfið, segir fjárfestir í rafmyntum sem furðar sig á áhugaleysi fyrirtækja í fjármálageiranum hér á landi. Hagfræðiprófessor telur að fái bitcoin ekki „almennilega notkun“ í framtíðinni verði það verðlaust og líkir slíkum fjárfestingum við kaup á frímerkjum.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/5926177DDD0CC8777FAB73207C019B0C52BBA872CBA51FE91FD1A1F784FC7691_308x200.jpg)
Rafmyntasjóðurinn Viska með 23 prósenta ávöxtun á fyrsta starfsári
Ávöxtun rafmyntasjóðsins Visku nam 23 prósent á fyrsta starfsári sínu sem lauk í júní. „Það hefur sýnt sig að varfærin nálgun okkar og stífar kröfur gagnvart mótaðilum eru að skila árangri,“ segja stjórnendur sjóðsins. Fjölmargir rafmyntasjóðir hafi lent illa í því síðastliðið ár og hætt starfsemi í ljósi erfiðra markaðsaðstæðna. „Að okkar mati er það versta yfirstaðið og útlitið fyrir næstu ár er afar spennandi.“