Verðandi stjórnarformaður Controlant fjárfesti í útboði félagsins
![Daninn Søren Skou, fyrrverandi forstjóri skipaflutningarisans AP Moller-Maersk, tekur við sem nýr stjórnarformaður Controlant í byrjun næsta árs en Gísli Herjólfsson er forstjóri félagsins.](https://www.visir.is/i/9A4A92A55A1493E0B61287DF1E0FE6657A4B5499F93F410952790D9606B99263_713x0.jpg)
Þrír íslenskir lífeyrissjóðir komu inn sem nýir beinir hluthafar í Controlant þegar þeir lögðu til félaginu meginþorra þess fjármagns sem það sótti sér í nýafstöðnu hlutafjárútboði. Daninn Søren Skou, verðandi stjórnarformaður Controlant og fyrrverandi forstjóri skipaflutningarisans AP Moller-Maersk, tók sömuleiðis þátt í útboðinu en í bréfi til fjárfesta boðar tæknifyrirtækið tíðari upplýsingagjöf til hluthafa.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/50D6F8487A19607FDB7D28D85C09219552329F4B36477631FFD7C60E2F8AD426_308x200.jpg)
Flestir sem missa vinnuna á Íslandi
Flestir þeirra áttatíu starfsmanna Controlant, sem var tilkynnt í morgun að yrði sagt upp störfum, starfa í starfsstöð félagsins á Íslandi. Forstjóri félagsins segir hagræðinguna vegna samdráttar í Covid-tengdum verkefnum fyrirtækisins.
![](https://www.visir.is/i/5D7738B4FA74A19DA10E2BDBB63534E38CC7561443AAE4154D3B48E5AB7CE2AB_308x200.jpg)
Controlant fengið 24 milljarða greidda fyrirfram frá lyfjarisanum Pfizer
Íslenska hátæknifyrirtækið Controlant, sem hefur gegnt lykilhlutverki í dreifingu og geymslu bóluefnaskammta gegn Covid-19 fyrir Pfizer, er með samkomulag við bandaríska lyfjarisann sem hefur tryggt félaginu verulegar fyrirfram innheimtar tekjur. Í árslok 2021 námu slíkar tekjur tengdar samningum við Pfizer um 174 milljónum Bandaríkjadala, jafnvirði tæplega 24 milljarða íslenskra króna, og koma þær að mestu inn í reksturinn á þessu ári og því næsta.