Viðskipti innlent

Úr tveggja milljarða tekjum í fimm en töpuðu þrjá­tíu

Samúel Karl Ólason skrifar
Róbert Wessmann er stofnandi og stjórnarformaður Alvotech.
Róbert Wessmann er stofnandi og stjórnarformaður Alvotech. Vísir/Vilhelm

Tekjur Alvotech á fyrsta ársfjórðungi þessa árs voru 37 milljónir dala. Á sama tímabili í fyrra voru tekjurnar sextán milljónir dala en upphæðirnar samsvara um 5,1 milljarði króna annars vegar og um 2,2 milljörðum hinsvegar.

Félagið tapaði þó 218,7 milljónum dala (um 30,3 milljörðum króna) á tímabilinu, samanborið við 276,2 milljónir dala (um 38,3 milljarðar króna) á sama tímabili í fyrra. Í uppgjöri Alvotech segir að tapið megi að stórum hluta rekja til gangvirðisbreytinga á afleiðutengdum skuldum.

Forsvarsmenn Alvotech hafa gert nýja sölusamninga um markaðssetningu á líftæknilyfjahliðstæðunni við Humira í Bandaríkjunum og á fyrirhugaðri hliðstæðu við Prolia og Xgeva í bandaríkjunum og í Evrópu. Þeir samningar voru tilkynntir í morgun og jókst virði hlutabréfa félagsins um 2,14 prósent í dag, þriðjudag.

Með hliðsjón af því hefur afkomuspá Alvotech fyrir þetta ári verið breytt. Nú er gert ráð fyrir auknum tekjum, á bilinu fjögur hundruð til fimm hundruð milljónum dala. Hagnaður fyrir skatt (EBITDA) er áætlaður á bilinu hundrað til 150 milljónir dala.

Áhugasamir geta fundið frekari upplýsingar hér í uppgjörinu og þá verður kynning á uppgjörinu í hádeginu á morgun sem send verður út í beinu streymi.

„Þetta er þegar orðið eitt viðburðaríkasta ár í sögu Alvotech. Frá því að við birtum uppgjör fyrir síðasta ár höfum við fagnað markaðsleyfi frá Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna (FDA) fyrir AVT04, líftæknilyfjahliðstæðu okkar við Stelara, undirritað mikilvægan samning um sölu- og markaðssetningu í Bandaríkjunum á hliðstæðunni við Humira og samið um sölu í Bandaríkjunum og Evrópu á AVT03, fyrirhugaðri hliðstæðu við Prolia og Xgeva. Þá er Teva, samstarfsaðili okkar í Bandaríkjunum, að ná góðum árangri í viðræðum um greiðsluþátttöku fyrir hliðstæðuna við Humira við bandarísku tryggingarfélögin,“er haft eftir Róbert Wessman, stjórnarformanni og forstjóra Alvotech í uppgjörinu.

„Góður gangur er jafnframt í lyfjaþróunarverkefnunum. Við kynntum nýlega jákvæðar niðurstöður úr samanburðarrannsókn á sjúklingum sem staðfestir klíníska virkni AVT06, fyrirhugaðrar hliðstæðu við Eylea. Þá birtum við jákvæðar niðurstöður úr rannsókn sem staðfesti klíníska virkni AVT05, fyrirhugaðrar hliðstæðu við Simponi og Simponi Aria. Við stefnum á að sækja um markaðsleyfi fyrir a.m.k. þrjú ný lyf seinni hluta ársins og þær áætlanir standast fyllilega.“





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×