Innlent

Mót­mæla þróun gervi­greindar á Austur­velli

Bjarki Sigurðsson skrifar
Aþena Ýr Ingimundardóttir skipuleggur mótmælin sem fara fram á Austurvelli.
Aþena Ýr Ingimundardóttir skipuleggur mótmælin sem fara fram á Austurvelli. Vísir/Vilhelm

Skipuleggjandi mótmæla gegn gervigreind vill að þróun gervigreindar verði sett á ís á meðan unnið er að því að skilja málaflokkinn betur. Helstu sérfræðingar í gervigreind hafi ekki hafa lausnir á þeim vandamálum sem myndast við þróun hennar. 

Mótmælin hófust á Austurvelli nú klukkan 12 en verið er að krefjast þess að þróun gervigreindar verði stöðvuð. Mótmælin eru haldin í samstarfi við samtökin PauseAI sem standa fyrir sambærilegum mótmælum víða um heim í dag. Aþena Ýr Ingimundardóttir, skipuleggjandi mótmælanna hér á landi, segir mannkynið ekki skilja tæknina almennilega.

„Það eru bara hreinlega of margar öryggisáhættur fyrir samfélagið í heild. Fyrir lýðræði og almennt öryggi. Við vitum ekki hvernig við getum tryggt að gervigreindin verði ekki misnotuð af allskyns hópum, eins og til dæmis hryðjuverkamönnum, einræðisherrum eða því um líkt,“ segir Aþena. 

Það dugi ekki að setja lagaramma í kringum notkun og þróun gervigreindar. Það þurfi að stöðva þróunina í bili.

„Á meðan það er verið að gera ítarlegar rannsóknir á því sem við höfum þróað nú þegar. Við skiljum þau forrit sem við höfum notað nú þegar ekki nálægt því nægilega vel. Þetta eru risastór tauganet sem enginn í raun skilur hvað er í gangi innan, bara hvernig þau eru þjálfuð og síðan hvað hún spýtur út úr sér. En við vitum ekki hvað er í gangi á bakvið, í tauganetinu sjálfu,“ segir Aþena. 

Sérfræðingar um gervigreind skilji sjálfir ekki allt um þróun hennar.

„Fremstu sérfræðingar heims hafa ekki lausnir á þeim vandamálum sem þau vita að við stöndum frammi fyrir. Það er bara of mikil pressa á að halda áfram að þróa, það hefur myndast mikil samkeppni,“ segir Aþena. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×