Norðlægari vindur í dag en um helgina Lovísa Arnardóttir skrifar 29. apríl 2024 07:16 Hiti verður á bilinu tvö til 12 stig á landinu í dag. Vísir/Arnar Í dag verður vindur norðlægari en var um helgina. Á Austfjörðum verður strekkingur, en annars hægari vindur. Lítilsháttar skúrir eða él verða á Norður- og Austurlandi, en bjart með köflum suðvestanlands. Hiti verður á bilinu tvö til 12 stig, mildast verður syðra.
Fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar í dag að á morgun sé svo útlit fyrir norðan golu eða kalda. Um kvöldið verður líklega hægviðri víðast hvar. Sunnan heiða verður bjart veður en skýjað og úrkomulítið norðantil á landinu. Hiti breytist lítið frá því í dag. Á miðvikudag er svo útlit fyrir að vindur snúist til suðlægra átta með vætu um landið sunnan- og vestanvert, Ekki er að sjá að hlýni neitt í bili nema að hitinn mun hækka dálítið á Norður- og Austurlandi. Fram kemur á vef Vegagerðarinnar, umferdin.is, að á Austurlandi séu víða hálkublettir og á Möðrudalsöræfum á Norðurlandi. Einnig eru hálkublettir á Vestfjörðum. Annars er nokkuð greiðfært um landið. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Norðan 3-10 m/s. Skýjað og hiti 0 til 5 stig, en yfirleitt léttskýjað og hiti að 12 stigum sunnantil. Á miðvikudag: Suðlæg eða breytileg átt, 3-10, hvassast vestast. Skýjað og dálítil rigning sunnan- og vestanlands síðdegis. Hiti 2 til 8 stig. Á fimmtudag: Suðlæg átt og rigning með köflum, en bjartviðri á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti 4 til 10 stig að deginum. Á föstudag: Austlæg eða breytileg átt og víða þurrt en rigning suðaustantil. Hiti breytist lítið. Á laugardag og sunnudag: Suðlæg eða breytileg átt. Víða rigning með köflum og milt.
Veður Færð á vegum Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Innlent Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Innlent Fleiri fréttir Sumarveður fyrir sunnan en annars staðar skýjað Hlýtt í dag en vætusöm vika fram undan Allt að tuttugu gráðu hiti sunnan heiða á morgun Blíðviðri á Norðurlandi í dag Allt að átján stiga hiti á morgun Snjórinn hverfur fljótt og blíða tekur við fyrir norðan Næsta gusa lendi á landinu annað kvöld Áfram hríðarveður fyrir austan Kalt loft, stormur, úrkoma, rigning, slydda og snjókoma á landinu Leifar af heimskautavetrinum valda usla Köld norðlæg átt á leiðinni og veður fer ört versnandi Spá appelsínugulri viðvörun á morgun Illviðri miðað við árstíma Samfelld rigning á Suðvesturlandi en þurrt á Vestfjörðum Regnsvæði á leið yfir landið Vætan minnkar smám saman og birtir til Skýjað og dálítil væta í dag Um 18 stig á Norðausturlandi í dag Líklega síðasta veðurviðvörunin í bili Gul viðvörun: Fyrsta trampólínið þegar fokið Þykknar upp síðdegis og hvessir í nótt Skúrir vestantil en bjartara fyrir austan Fremur vætusamt um sunnan- og vestanvert landið Vindur talsvert hægari en í gær Gular viðvaranir víðs vegar um landið Suðvestlæg átt og skúrir eða slydduél Víða gola og dálítil væta Hiti gæti náð fimmtán stigum norðaustantil Víðast bjart en dálitlar skúrir sunnanlands Þurrt suðvestantil og hiti á landinu að tólf stigum Sjá meira