Tíska og hönnun

Hefur hannað fyrir Miley Cyrus og Erykah Badu

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Ýr Jóhannsdóttir eða Ýrúrari hefur vakið mikla athygli fyrir peysur sínar.
Ýr Jóhannsdóttir eða Ýrúrari hefur vakið mikla athygli fyrir peysur sínar. Sigríður Margrét

Textílhönnuðurinn Ýr Jóhannsdóttir eða Ýrúrarí hefur vakið mikla athygli víðs vegar um heiminn fyrir einstakar peysur sínar en hennar einkenni er að gefa gölluðum flíkum nýtt og flottara líf. Mynd af peysu Ýrar fór sem eldur um sinu um Internetið fyrir nokkrum árum og leiddi það meðal annars af sér viðskipti við Miley Cyrus og Erykah Badu og viðtal við Vogue. Blaðamaður ræddi við Ýr eða Ýrúrarí en hún verður með sýningu á HönnunarMars í ár.

Prjón, húmor og klæðileg list

„Ýrúrarí hefur gefið ósöluhæfum 66°Norður peysum nýtt líf með því að hylja göt og aðra galla í efni með sérhönnuðum bótum úr afskornum efnisbútum sem fallið hafa til við framleiðsluna á síðustu árum. 

Í hönnunarferlinu á bótunum sótti Ýrúrarí innblástur í lögun tölustafanna 66 sem prýða merki 66°Norður. Ýrúrarí er þekkt fyrir prjón, húmor, og klæðilega list, með áherslu á sjálfbærni og hringrás texílefna,“ segir í tilkynningu frá HönnunarMars.

Ýr var búsett í Berlín í tvö ár en flutti heim til Íslands í janúar. Hún starfar hérlendis og hefur í mörg ár tekið þátt í HönnunarMars með ýmsa vinsæla viðburði. Sömuleiðis vinnur hún mikið af verkefnum í Danmörku og fær oft pantanir frá fólki í Bandaríkjunum og af meginlandi Evrópu. 

Ýr gefur gölluðu peysunum nýtt líf. Sigríður Margrét

„Það breytti bókstaflega öllu“

Hún er með tæplega 180 þúsund fylgjendur á samfélagsmiðlinum Instagram og hafa peysurnar hennar notið mikilla vinsælda.

„Fyrir um sex árum síðan fór þetta svolítið á flug. Þá hafði ég verið að endurvinna gamlar peysur og gera þær fallegri og gerði meðal annars peysu með þrívíðum tungum sem komu út úr ermunum. 

Ég birti mynd af henni á Instagram og löngu síðar varð hún allt í einu mjög vinsæl á Instagram. Þá hafði einhver síða deilt peysunni og það breytti bókstaflega öllu.“

Í kjölfarið fór Ýr að fá áhugaverðar pantanir frá stórstjörnum.

„Miley Cyrus fékk umrædda peysu en stílistinn hennar setti sig í samband við mig. Ég hef reyndar aldrei séð mynd af henni í henni en hún hangir allavega einhvers staðar inni í skáp hjá henni. 

Erykah Badu bað líka um peysu og út frá því hef ég verið að vinna svolítið með henni, hún á þó nokkrar peysur frá mér.“
Erykah Badu var meðal fyrstu kaupenda á hönnun Ýrar. Instagram @yrurari

Hannaði grímur í einangrun

Hún segir að samfélagsmiðlarnir geti sannarlega verið svolítið handahófskenndir og það sé erfitt að sjá fyrir hvað fólk fíli. Sumt virkar þó einfaldlega bara.

„Þetta er svo fyndið því að myndin af þessari peysu sem varð fyrst svona áberandi á netinu er tekin á gamla iphone-inn minn og er í hræðilegum gæðum en hún er ennþá í dreifingu. Þetta var svona aðal bömpið þar sem hönnunin mín fór að vekja athygli.“

Í Covid fór svo annað verkefni Ýrar á flug.

„Ég var í einangrun að reyna að finna mér eitthvað að gera og ákvað að hanna andlitsgrímur sem voru svipaðar covid grímunum. Þetta voru prjónaðar skyssur hjá mér til dæmis með þrívíðum tungum og þetta varð mjög vinsælt. Í kjölfarið fór ég í viðtal hjá tímaritinu Vogue og eftir það urðu vinsældirnar meiri.“

Peysur Ýrúrarí hafa vakið athygli víðsvegar um heiminn. Sigríður Margrét

Eftirsóttar peysur til sölu

Peysur Ýrar eru einstakar og tekur ferlið langan tíma. Því getur verið erfitt að festa kaup á þeim. Í fyrra var hún með sýningu á peysum á Hönnunarsafni Íslands en hún stefnir á að setja peysurnar á sölu eftir að netverslun hennar er tilbúin.

„Fyrir HönnunarMars verkefni mitt og 66°Norður verða sömuleiðis tuttugu peysur til sölu. Þær eru líka kannski á viðráðanlegra verði en aðrar peysur frá mér þar sem þær taka ekki eins mikla vinnu. Þær eru þó allar einstakar en um er að ræða örlítið gallaðar peysur með flísbætum úr flísafgöngum frá 66°Norður.“

Ýr segist finna fegurðina í göllunum og leggur upp úr því að alltaf sé hægt að laga flíkurnar frekar en að henda og kaupa nýtt.

„Ég hef undanfarið oft verið að halda smiðjur þar sem lögð er rík áhersla á þetta. Fólk kemur með peysur sem það er ekki lengur spennt fyrir eða sem eru eitthvað smá eyðilagðar og ég sýni þeim einföldustu aðferðirnar til þess að gera þær bæði persónulegar og geggjaðar.“

Hún segir að slíkar smiðjur hafi notið mikilla vinsælda.

„Ég hef verið með þær reglulega síðastliðin ár en þetta byrjaði sem lokaverkefni hjá mér í meistaranáminu mínu við Listkennslu í LHÍ. Ég verð til dæmis með nokkrar smiðjur í maí.

Það skiptir mjög miklu máli að leita vistvænna leiða og það er bara miklu skemmtilegra. Það eru kannski ekki jafn miklir peningar í því og að vera stöðugt með eitthvað nýtt en þetta er mjög mikilvæg nálgun að hafa að leiðarljósi.“

Ýr leggur ríka áherslu á að endurvinna og lagfæra. Sigríður Margrét

Vinsælar ullarpizzur í útrás

Í fyrra stóð Ýr sömuleiðis fyrir Pizzustund á HönnunarMars með listakonunum í Stúdíó Fléttu. Viðburðurinn sló í gegn en hann var haldinn í Gallery Port sem þá var á Laugavegi og náði röðin langt niður götuna.

„Þetta byrjaði út frá því að við Stúdíó Flétta vildum gera samstarfsverkefni. Við fórum í textílverksmiðjuna á Blöndósi og vorum að skoða hvað væri hægt að gera við ullarafganga. 

Eftir að hafa gert ýmislegt með þæfingarvélinni ákváðum við að búa til ullarpizzurnar því að allt sem við bjuggum til varð eitthvað svo pizzulegt,“ segir Ýr og hlær.

Viðburður Ýrúrari og 66°Norður opnar sem áður segir næstkomandi miðvikudag klukkan 18:00 og er staðsett í verslun 66°Norður á Hafnartorgi. Hér má nálgast nánari upplýsingar um viðburðinn

„Þetta verður geggjað partý og fólk getur komið að máta peysurnar. Kaupendur fá svo peysurnar afhentar á sunnudaginn,“ segir Ýr að lokum.


Tengdar fréttir

Kemur beint frá París með vistvæna tískustrauma

„Markmið mitt er að geta fært reynsluna mína inn í framtíðina með von um betri og sjálfbærari leiðir til að búa til klæðnað,“ segir fata-og textílhönnuðurinn Ása Bríet Brattaberg. Hún hefur verið að gera öfluga hluti í tískuheiminum úti og segist með námi sínu og reynslu hafa aflað sér framúrskarandi tæknilegrar og skapandi þekkingar.

Ragga Gísla útskýrir gjörninginn

Ragga Gísla verður með alveg einstakan gjörning á Hönnunarmars. Og Hönnunarmars breiðir úr sér um höfuðborgarsvæðið dagana 24. til 28. apríl.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×