Innlent

Getur gosið hve­nær sem er

Kjartan Kjartansson skrifar
Víðir Reynisson, sviðsstjóri almannavarna, í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld.
Víðir Reynisson, sviðsstjóri almannavarna, í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld. Vísir

Sviðsstjóri almannavarna segir að nýtt gos geti hafist á Reykjanesi hvenær sem er. Líklegast sé að gjósi þar sem kvika kemur upp núna á Sundhnúkagígaröðinni.

Almannavarnir hafa aukið viðbúnað sinn vegna hættunnar á öðru eldgosi til viðbótar við það sem er þegar í gangi á Reykjanesi. Áframhaldandi landris á svæðinu er sagt auka líkur á öðru kvikuhlaupi.

Eftir að fjórða eldgosið hófst þann 16. mars hægði landris verulega á sér fyrst um sinn og nánast stöðvaðist. Það gaf til kynna að jafnvægi væri á innstreymi kviku inn í kvikuhólfið undir Svartsengi og upp á yfirborð í Sundhnúksgígaröðinni. 

Í byrjun apríl fór landris að aukast aftur og er nú um það bil jafn stór hluti kvikunnar að flæða upp á yfirborð og er að safnast fyrir í kvikuhólfinu undir Svartsengi með tilheyrandi auknum kvikuþrýstingi, að því er kom fram á vefsíðu Veðurstofunnar í dag.

Víðir Reynisson, sviðsstjóri almannavarna, sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 að kvikusöfnun væri nú farin að nálgast það sem skilgreint sé sem neðri viðmiðunarmörk. Þá hafi verið tekin ákvörðun um hærra viðbúnaðarstig.

„Við horfum á þetta þannig að það geti gosið hvenær sem er, annað hvort stækkað þetta gos sem er eða gosið á nýjum stað, við getum ekki útilokað það. Þess vegna erum við núna tilbúin og við lítum á að við séum búin að fá þær viðvaranir sem við fáum áður en til goss gæti komið,“ sagði Víðir.

Líklegast sé að gjósi þar sem kvika kemur nú upp þar sem opið sé fyrir hana þar.

„En við erum að horfa á alla þessa Sundhnúkagígaröð og í kringum alla þá staði sem hefur gosið hingað til. Ég held að það sé engan veginn hægt að útiloka með neinum hætti að við gætum verið að horfa á slíkt,“ sagði Víðir.


Tengdar fréttir

Eiga von á öðru eldgosi

Áframhaldandi landris eykur líkur á öðru kvikuhlaupi þó eldgos sé yfirstandandi Meiri óvissa um þróun jarðhræringanna næstu daga eða vikur. Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×