Innlent

Boltinn hjá Seðla­banka, fyrir­tækjum, ríki og sveitar­fé­lögum

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Kristján Þórður Snæbjarnarson segir alla þurfa að vera samstíga til að markmið viðræðnanna gangi eftir.
Kristján Þórður Snæbjarnarson segir alla þurfa að vera samstíga til að markmið viðræðnanna gangi eftir. Vísir/Ívar

Samningur fagfélaganna við Samtök atvinnulífsins var undirritaður í dag og Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambandsins, segir að allir þurfi að vera samstíga og að boltinn sé nú hjá Seðlabanka, fyrirtækjum landsins, ríki og sveitarfélögum.

Kristján segir samninginn vera mjög samhljóða þeim sem breiðfylking Starfsgreinasambandsins, Eflingar og Samiðnar skrifaði undir fyrr í vikunni. Fagfélögin hafi verið við samningaborðið síðan í desember og því haft áhrif á stefnu samninganna varðandi launaliðinn og fleira. 

Það sem helst greinir þeirra samning frá samningi breiðfylkingarinnar séu orlofsdagar sem þeim tókst að tryggja sínu fólki ásamt breytingu á yfirvinnu.

„Það eru fjölmörg atriði þarna sem skipta máli en auðvitað erum við líka að leggja okkar lóð á vogarskálirnar að reyna að ná tökum á því ástandi sem hefur verið í okkar samfélagi,“ segir Kristján.

Hann segir samninginn vera tímamótasamning fyrir tæknifólk vegna þess að ekki hafi verið almennur samningur í gildi fyrir þá stétt. Það sé stórt skref sem hefur verið í vinnslu í mörg ár.

„Það sem skiptir mestu máli er að ná að auka kaupmátt launa okkar fólks og tryggja þeim hækkanir. Síðan skiptir gríðarlega miklu máli fyrir fólkið að vextir muni lækka hér á landi og verðbólga. Það er auðvitað inntakið sem mun skipta máli,“ segir Kristján.

„Boltinn er hjá Seðlabanka, fyrirtækjum í landinu, ríki og sveitarfélögum að halda aftur af gjaldskrám og taka þátt í þessu verkefni með okkur. Það er auðvitað það sem skiptir öllu máli. Við sendum boltann yfir þangað.“

Aðspurður um hvort hann sé bjartsýnn um að þau muni taka við boltanum segir hann mikilvægt að fólk taki höndum saman og stigi þessi skref með sér. 

„Það er það sem verður að gerast. Annars mun ekki ríkja sátt um hvernig samfélagi við viljum búa í. Við fórum eins langt og mögulegt var við þessar aðstæður,“ segir Kristján.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×