Tóku saman höndum fyrir Hendi næst Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 26. febrúar 2024 18:00 Það var margt um manninn á Ásmundarsafni. SAMSETT Margt var um manninn í Ásmundarsafni í síðastliðinni viku á opnun sýningarinnar Hendi næst.
Er um að ræða samsýningu þar sem verk Ásmundar Sveinssonar (1893-1982) mæta verkum samtímalistamanna sem skapa myndverk með eigin höndum og nýta rótgrónar handverkshefðir við listsköpun sína. Má því segja að fjölbreyttur hópur fólks hafi tekið saman höndum við gerð sýningarinnar. Anna Júlía Friðbjörnsdóttir, Arna Óttarsdóttir, Árni Jónsson, Carissa Baktay, Elísabet Brynhildardóttir, Hildur Bjarnadóttir, Klemens Hannigan, Ragnheiður Gestsdóttir, Sigurrós G. Björnsdóttir og Sindri Leifsson eru með verk á sýningunni ásamt Ásmundi. Listasafn Reykjavíkur „Sýningin endurspeglar vaxandi áhuga samtímalistamanna sem og áhorfenda á handverki en jafnframt verður horft til baka til þess að gera grein fyrir því hvernig arfleifð Ásmundar Sveinssonar endurómar í framúrstefnulegri tjáningu samtímans. Afturhvarf til handverks má líta á sem andsvar við löngu tímabili konseptlistar, rannsóknamiðaðrar listar og annarra huglægra áherslna í samtímalist, en einnig sem viðbragð við stafrænum veruleika þar sem flest svið mannlífsins hafa færst yfir á vettvang sem er allt annað en fastur í hendi,“ segir í tilkynningu frá safninu. Kemur einnig fram að handverk sé gjarnan tengt við gerð hluta sem hafa notagildi. Eitthvað sem hægt er að klæðast eða borða og drekka úr sem dæmi. „Áður fyrr var handverk álitið veigaminna listform en málverk og skúlptúr því hlutirnir sem gerðir voru gegndu hlutverki tengt heimilinu. Þetta voru líka skapandi hefðir kvenna sem stóðu höllum fæti gagnvart körlum og þóttu lægri í valdastiganum. Á tuttugustu öld urðu mörkin milli listar og handverks óljós, sérstaklega í kjölfar listastefnu eins og Bauhaus, þar sem listamenn fóru að gera tilraunir með handverksaðferðir í listsköpun sinni. Í dag nota samtímalistamenn handverk óhikað í listsköpun sinni. Þeir leita nýstárlegra og óvæntra leiða í handverksaðferðum og gera hina aldagömlu umræðu um aðskilnað handverks og listar úrelta.“ Ásamt Ásmundi voru eftirtaldir listamenn með verk: Anna Júlía Friðbjörnsdóttir, Arna Óttarsdóttir, Árni Jónsson, Carissa Baktay, Elísabet Brynhildardóttir, Hildur Bjarnadóttir, Klemens Hannigan, Ragnheiður Gestsdóttir, Sigurrós G. Björnsdóttir og Sindri Leifsson. Hér má sjá myndir frá opnuninni: Ólöf Kristín Sigurðardóttir, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, Jóna Skúladóttir, Skúli Helgason formaður stjórnar Ásmundarsafns og Becky Forsythe sýningarstjóri Hendi næst.Listasafn Reykjavíkur Gestir á sýningaropnun. Listasafn Reykjavíkur Becky Forsythe sýningarstjóri í forgrunni og Ása Hauksdóttir til vinstri við hana. Listasafn Reykjavíkur Skúli Helgason opnar sýninguna.Listasafn Reykjavíkur Ásdís Ásmundsdóttir fyrir miðju, dóttir Ásmundar Sveinssonar. Listasafn Reykjavíkur Sýningargestir voru ánægðir með opnunina. Listasafn Reykjavíkur Katrín Elvarsdóttir og Kristín Dagmar Jóhannesdóttir.Listasafn Reykjavíkur Þessar voru í listrænu stuði! Listasafn Reykjavíkur Listunnendur komu saman á Ásmundarsafni á sýningaropnuninni. Birta Guðjónsdóttir, Damon Younger og Ásdís Spanó voru í góðum gír. Listasafn Reykjavíkur Gunnar Þorri Gunnarsson og Ása Hjörleifsdóttir með ungan listunnanda. Listasafn Reykjavíkur Bryndís Snæbjörnsdóttir, Guðrún Bjarnadóttir og Hildur Bjarnadóttir voru meðal gesta. Listasafn Reykjavíkur Eygló Harðardóttir lét sig ekki vanta og var í góðum félagsskap. Listasafn Reykjavíkur Hekla Dögg Jónsdóttir og Eirún Sigurðardóttir skáluðu fyrir listinni. Listasafn Reykjavíkur Gestir virtu verkin fyrir sér. Listasafn Reykjavíkur Birta Guðjónsdóttir, Damon Younger og Ásdís Spanó.Listasafn Reykjavíkur Líf og fjör í listinni. Listasafn Reykjavíkur Fjölbreyttar kynslóðir mættu og upplifðu listina. Listasafn Reykjavíkur Þessi brostu breitt á Ásmundarsafni. Listasafn Reykjavíkur Listamennirnir notuðust við handverk á fjölbreyttan máta og gátu gestir skoðað verkin gaumgæfilega.Listasafn Reykjavíkur
Sýningar á Íslandi Samkvæmislífið Menning Myndlist Mest lesið Þjóðarsálin í reiðhöllinni Lífið „Ég hef aldrei reynt að verða nokkur skapaður hlutur“ Tónlist „Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“ Áskorun Inga Tinna og Logi greina frá kyni barnsins Lífið Segir hjálminum að þakka að hann sé á lífi Lífið Heilmikil skemmtidagskrá og samsöngur á Þingvöllum í dag Lífið Lofar svakalegri veislu Tónlist Tengdasonur Íslands trúðaði Simon Cowell upp úr skónum Bíó og sjónvarp Arnar Þór selur Arnarneshöllina Lífið Heiður Ósk og Davíð eru nýtt par Lífið Fleiri fréttir Þau eru tilnefnd til Ísnálarinnar í ár Hvað eigum við að kalla eiginmann forseta? Erna Ómars er borgarlistamaður Reykjavíkur „Svolítið eins og að standa nakinn inni í vita“ Líf og fjör á Grímunni Ást Fedru og Saknaðarilmur fengu fern Grímuverðlaun hver Margrét Helga hlýtur heiðursverðlaun Grímunnar „Leikmyndin er auðvitað algjört rusl“ Gríman 2024: Saknaðarilmur hlaut flestar tilnefningar Barbara Hannigan stjórnar Sinfóníuhljómsveitinni Bergur Þór nýr leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar Nóbelsverðlaunahafinn Alice Munro er látin Fjögurra ára rússíbanareið að baki Sjá meira