Fyrirtækjaþjónusta IKEA veitir þínu fyrirtæki byr undir báða vængi IKEA 27. febrúar 2024 13:19 Hvort sem þú ert að stofna nýtt fyrirtæki eða langar að breyta til og bæta, getur þú leitað til Fyrirtækjaþjónustu IKEA. Viðskiptavinir Fyrirtækjaþjónustunnar fá betri yfirsýn yfir útgjöld og spara fyrirhöfn og tíma. Þau sem reka fyrirtæki vita að útlit og aðstaða skiptir máli, bæði fyrir starfsfólk og viðskiptavini.
Það er í mörg horn að líta þegar fyrirtækið er innréttað og dýrmætum tíma ef til vill betur varið í annað en að velja húsbúnað, sækja og skipuleggja. Þar getur þjónusta Fyrirtækjaþjónustu IKEA verið gulls ígildi. Starfsfólk Fyrirtækjaþjónustunnar veitir víðtæka þjónustu þegar kemur að ýmiss konar framkvæmdum. Þjónustan auðveldar viðskiptavinum lífið með því að halda utan um birgðir og senda vörurnar ásamt því að halda utan um allt kaupferlið. Fyrirtækjaþjónustan er skipuð færum ráðgjöfum sem leggja mikið upp úr því að mæta þörfum hvers viðskiptavinar og aðlaga sendingu og afhendingu eftir því sem hentar best. Starfsfólk Fyrirtækjaþjónustu IKEA vinnur í samstarfi við reynda smiði og tekur einnig við sérpöntunum fyrir stærri verkefni, til dæmis fjölbýlishús. Persónuleg þjónusta Fyrirtækjaþjónusta IKEA veitir persónulega og skilvirka þjónustu sem felst í ráðgjöf við val á öllum húsbúnaði og leiðbeiningum við skipulagningu. Ingvi Þór Markússon (t.v.) og Dofri Örn Guðlaugsson eru hluti af teymi Fyrirtækjaþjónustu IKEA. „Persónuleg þjónusta, yfirsýn og tímasparnaður eru helstu kostirnir við að fá aðstoð hjá okkur,“ segir Dofri Örn Guðlaugsson, starfsmaður Fyrirtækjaþjónustunnar. „Við þekkjum þetta ferli frá a til ö þannig að við vitum hvar gildrurnar leynast. Stundum gleymast vissir hlutir eða það gleymist að gera ráð fyrir tíma í vissa verkþætti einfaldlega vegna þess að hann er af skornum skammti eða yfirsýnina vantar.“ Er kominn tími á að endurinnrétta vinnustaðinn eða vantar þig aðstoð við að velja nýja stóla í atvinnurými? Ráðgjafar Fyrirtækjaþjónustunnar hjálpa þér að finna bestu lausnina fyrir fyrirtækið þitt. Ólík fyrirtæki – ólíkar lausnir Fyrirtækjaþjónusta IKEA er skipuð reyndu starfsfólki sem aðstoðar fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum við að velja fallegar og hagnýtar lausnir. „Ráðgjöf og teikniþjónusta Fyrirtækjaþjónustunnar er ókeypis. Viðskiptavinurinn tekur einfaldlega fyrsta skrefið með því að hafa samband við okkur og þaðan hefjum við samstarf sem er sniðið að viðskiptavininum,“ segir Dofri. „Við sinnum viðskiptavinum með þarfir viðkomandi í huga og getum bent fólki á leiðir eða vörur sem það hefði mögulega ekki komið auga á sjálft. Í grunninn má segja að þeir sem leiti til okkar séu að fá aðstoð við að einfalda lífið svolítið,“ segir Dofri. Hér er innlit í tvö ólík fyrirtæki sem nýttu sér kunnáttu og reynslu Fyrirtækjaþjónustu IKEA. Icewear garn Verslunin er björt og notaleg og það fyrsta sem grípur augað er garnið sjálft, fallega uppraðað í einfaldar hillur. Fyrirtækjaþjónustan getur veitt ráðgjöf þegar kemur að því að opna nýja verslun eða fara af stað með nýtt fyrirtæki. Á síðasta ári opnaði Icewear verslun sína í Faxafeni í nánu samstarfi við ráðgjafa Fyrirtækjaþjónustu IKEA. Garnið er í opnum hirslum og annað sem ekki þarf að sjást er í lokuðum hirslum neðst. Hillurnar halda góðu skipulagi á garninu svo gott aðgengi sé að þeim fyrir viðskiptavini. Alvotech Þegar kemur að góðu vinnuumhverfi skiptir máli að hafa gott skipulag, gott aðgengi að hlutunum og að rýmið sé snyrtilegt. Líftæknifyrirtækið Alvotech nýtti sér Fyrirtækjaþjónustu IKEA til að innrétta tímabundnar rannsóknarstofur í Klettagörðum. Starfsfólk Fyrirtækjaþjónustunnar sá um ráðgjöf við val á húsbúnaði og leiðbeiningar við skipulagningu rannsóknarstofanna. Eldhúsinnréttingar voru notaðar til að skapa skilvirka og vel skipulagða vinnuaðstöðu. Hvort sem þú ert að endurinnrétta vinnustaðinn eða vantar aðstoð við að velja nýja stóla í atvinnurými þá hjálpa ráðgjafar Fyrirtækjaþjónustu IKEA þér að finna bestu lausnina fyrir fyrirtækið þitt. Það kostar ekkert að hitta ráðgjafa og fundurinn getur farið fram í verslun IKEA, á vinnustaðnum þínum eða í gegnum fjarfundarbúnað. Kynntu þér þjónustuna eða óskaðu eftir ráðgjöf hér. Gott skipulag er lykilatriði. Hér eru hnífaparabakkar notaðar í skúffurnar til þess að halda smáhlutum til haga.Gott skipulag er lykilatriði. Hér eru hnífaparabakkar notaðar í skúffurnar til þess að halda smáhlutum til haga.
Atvinnurekendur Hús og heimili Mest lesið Icelandair segir upp 57 flugmönnum Viðskipti innlent „Krakkar sem gistu hjá okkur vissu ekki hvað var að gerast!“ Atvinnulíf Hinn almenni borgari þurfi ekki að dæla í sig steinefnum Neytendur Brimborg lækkar verð á rafbílnum Volvo EX30 Samstarf Blár Opal seldist á fimmtán þúsund Neytendur „Sársaukafullt að sjá“ IKEA vasa dýrari í Góða hirðinum Neytendur MAST varar við ólöglegu innihaldsefni í fæðubótarefni Neytendur Festi fær að kaupa Lyfju Neytendur Danir höndla ekki kóresku pakkanúðlurnar Viðskipti erlent Leiðtogakulnun: Þegar yfirmaðurinn er alveg búinn á því Atvinnulíf Fleiri fréttir Minnir á flotta tannlæknastofu Brimborg lækkar verð á rafbílnum Volvo EX30 Nýr Peugeot E-3008 rafbíll frumsýndur í Brimborg Bílaumboðið Una skrifar undir samning við XPENG Skelltu þér í sólina í sumar Glæsilegir salir sem henta fyrir fjölbreytta viðburði Ánægðari börn, foreldrar og starfsfólk og öflugt fagstarf Brimborg lækkar verð á Polestar Iðnaðarmaður ársins 2024 er fundinn Ofursmart heilsárshús Glæsilegar íbúðir með frábæru útsýni Ný leið fyrir fyrirtæki til að rafvæða bílaflotann Toyota fagnar sumrinu á laugardag Þú þarft ekki að óttast rigninguna Eitt glæsilegasta byggingarsvæði höfuðborgarsvæðisins Kann best við sig í háspennunni Ný og glæsileg Icebreaker deild opnar í dag Vinnur við að bjarga okkur frá því að drukkna í eigin kúk Nýr CLE 53 frá Mercedes-AMG frumsýndur á laugardag Umferðareiður kjötiðnaðarmaður tilnefndur Landvörðurinn sem endaði í píparanum Velur brauðtertu fram yfir heitan rétt - Gunnar Þór er tilnefndur í Iðnaðarmanni ársins Vill sigra svo hún geti skilað lánsverkfærum Skímó í uppáhaldi - Ásmundur Goði tilnefndur í Iðnaðarmanni ársins Heitur pottur og sauna, tvenna sem getur ekki klikkað! Merkum áfanga fagnað í verslun BYKO á Selfossi Bein útsending: Opinn kynningarfundur vegna útboðs Íslandshótela Greiðsluáskorun VÍS gefið yfir 1.100 fjölskyldum barnabílspegla í sængurgjöf Hraðhleðslur spretta upp sem gorkúlur - tvær opna á Þórshöfn Sjá meira