Viðskipti innlent

Bein út­sending: Er ríkið í stuði?

Atli Ísleifsson skrifar
Fundurinn fer fram á Grand Hótel Reykjavík og hefst klukkan 16.
Fundurinn fer fram á Grand Hótel Reykjavík og hefst klukkan 16. FA

Nýr markaður fyrir hleðslu og þjónustu fyrir rafbílaeigendur hefur orðið til með orkuskiptum í samgöngum. Fyrirtæki í eigu ríkis og sveitarfélaga veita einkafyrirtækjum harða samkeppni á þessum nýja markaði án þess að það hafi fengið mikla athygli eða umræðu.

Er einhver þörf á að hið opinbera þjónusti rafbíla frekar en bensín- eða dísilbíla? Er samkeppnin sanngjörn og opinberu fyrirtækin að sinna sínu eðlilega hlutverki – eða er eitthvað mjög óeðlilegt í gangi?

Þessum spurningum er velt upp á opnum fundi Félags atvinnurekenda sem fram fer á Grand Hótel Reykjavík og hefst klukkan 16. Hægt verður að fylgjast með fundinum í spilara að neðan.

Á fundinum verður kynnt ný skýrsla, „Er ríkið í stuði?“ sem ráðgjafarfyrirtækið Intellecon hefur unnið fyrir FA um markað orkuskipta í samgöngum.

Fulltrúar fyrirtækja á markaðnum lýsa sinni reynslu af samkeppni við fyrirtæki hins opinbera og ráðherra orkumála lýsir sinni afstöðu til þessarar þróunar.

Hægt verður að fylgjast með fundinum í spilanum að neðan.

Dagskrá:

16.00 Fundur settur

Anna Kristín Kristjánsdóttir, varaformaður FA, fundarstjóri

16.05 Opnunarávarp

Guðrún Ragna Garðarsdóttir, formaður FA og framkvæmdastjóri Atlantsorku

16.15 Er ríkið í stuði? Kynning á nýrri skýrslu

Gunnar Haraldsson, framkvæmdastjóri Intellecon

16.30 Samkeppni með forgjöf

Þórdís Lind Leiva, forstöðumaður orkusviðs N1

16.45 Eru orkuskipti eftirlitslaus?

Sigurður Ástgeirsson, framkvæmdastjóri Ísorku

17.00 Ávarp

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra






Fleiri fréttir

Sjá meira


×