Samstarf

Ó­háður saman­burður á fast­eigna­lánum

Félag fasteignasala
Inni á fasteignavef visir.is geta einstaklingar í fasteignahugleiðingum nú með einföldum hætti í gegnum lánareiknivél Aurbjargar séð óháðan samanburð húsnæðislána og fundið út hvar hagstæðasta lánið er að finna.  Mynd/Vilhelm.
Inni á fasteignavef visir.is geta einstaklingar í fasteignahugleiðingum nú með einföldum hætti í gegnum lánareiknivél Aurbjargar séð óháðan samanburð húsnæðislána og fundið út hvar hagstæðasta lánið er að finna.  Mynd/Vilhelm.

Í vikunni skrifuðu Félag fasteignasala og Aurbjörg undir samning sem gerir öllum notendum fasteignavefs Félags fasteignasala sem er inni á visir.is mögulegt að leita gjaldfrjálst eftir hvar hagstæðustu húsnæðislánin eru að finna.

Inni á hverri eign á fasteignavef visir.is geta einstaklingar í fasteignahugleiðingum nú með einföldum hætti í gegnum lánareiknivél Aurbjargar séð óháðan samanburð húsnæðislána og fundið út hvar hagstæðasta lánið er að finna.

Monika Hjálmtýsdóttir, formaður Félag fasteignasala, segir að með þessu sé einstakur möguleiki fyrir kaupendur fasteigna að kanna með skýrum og greinargóðum hætti þá lánamöguleika og lánskjör sem boðið er upp á hvort sem fólk leitar eftir óverðtryggðum, verðtryggðum, föstum eða breytilegum vöxtum.

Ásdís Arna Gottskálksdóttir, framkvæmdastjóri Aurbjargar, segir einkar ánægjulegt að geta boðið notendum fasteignavefsins að nota lánreikni Aurbjargar til að bera saman húsnæðislán frá öllum helstu lánveitendum og séð mánaðarlegar greiðslur og heildargreiðslu láns út frá forsendum hvers og eins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×