Veður

Gul við­vörun og mis­­jafnt á­rá­­móta­veður eftir lands­hlutum

Eiður Þór Árnason skrifar
Gera má ráð fyrir að landinn muni sem fyrr reyna að sprengja af sér gamla árið.
Gera má ráð fyrir að landinn muni sem fyrr reyna að sprengja af sér gamla árið. vísir/vilhelm

Í dag verður norðaustanátt á landinu, víðast hvar fimm til þrettán metrar á sekúndu, en að átján metrar á sekúndu suðaustanlands. Skýjað með köflum en dálítil él norðaustan- og austantil. Frost eitt til ellefu stig.

Fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands að áramótaveðrið líti misvel út eftir landshlutum. Á austanverðu landinu verði til að mynda norðaustan strekkingur og allhvass vindur með slyddu eða rigningu en snjókomu inntil landsins. 

Búast má við heldur hægari vindi í öðrum landshlutum og verður að mestu bjart. Best verður þó á Faxaflóasvæðinu þar sem vindur verður fremur hægur fram eftir nóttu. 

Gul viðvörun á Suðausturlandi

Gul viðvörun vegna hvassviðris eða storms er í gildi á Suðausturlandi frá klukkan 22 í kvöld fram til hádegis á nýársdag. Þar er spáð norðaustan 13 til 23 metrum á sekúndu með vindhviðum yfir 35 metrum á sekúndu, hvassast í Öræfum. Rigning eða slydda og jafnvel snjókoma í fyrstu. Fylgja þessu veðri erfið akstursskilyrði.

Á fyrsta dagi nýs árs heldur svo áfram að blása af norðaustri með rigningu eða slyddu, einkum austanlands. Hiti núll til sjö stig.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á mánudag:

Norðaustan 10-18 m/s, hvassast syðst. Rigning eða slydda, en lítilsháttar snjókoma norðan heiða. Hiti yfirleitt 0 til 4 stig á láglendi.

Á þriðjudag:

Norðaustlæg átt, 5-13 m/s, hvassast á Vestfjörðum. Rigning með köflum suðaustan- og austanlands, stöku él norðantil, en lengst af þurrt á Vesturlandi. Hiti í kringum frostmark.

Á miðvikudag:

Norðaustlæg átt og úrkomulítið víðast hvar. Heldur kólnandi.

Á fimmtudag:

Norðaustlæg átt, skýjað með köflum og dálítil él úti við norður- og austurströndina. Frost 0 til 10 stig.

Á föstudag:

Útlit fyrir hæga austlæga eða breytilega átt með éljum á víð og dreif. Hiti svipaður.

Á laugardag:

Líklega breytileg átt og snjókoma með köflum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×