Viðskipti erlent

Danir vilja frekar versla „túrbó kjúk­ling“

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Skiptar skoðanir eru á kaupum á kjúklingakjöti í Danmörku.
Skiptar skoðanir eru á kaupum á kjúklingakjöti í Danmörku. Mustafa Ciftci/Anadolu Agency via Getty Images

Danskir neytendur versla frekar svokallaðan „túrbó kjúkling“ sem ræktaður hefur verið til þess að vaxa hratt, frekar en venjulegan kjúkling sem hefur það betra. Ástæðan er hækkandi verðlag sökum verðbólgu og stríðsins í Úkraínu.

Í umfjöllun danska ríkisútvarpsins um málið er haft eftir Kasper Lenbroch, framkvæmdastjóra Danpo sem er stærsti kjúklingaframleiðandi Danmerkur, að fyrirtækið hafi tapað milljónum vegna þessa. Fyrirtækið hafi veðjað á að Danir myndu í vaxandi mæli velja kjöt af hænum sem alist hefðu upp við ásættanleg skilyrði.

Útskýrt er í frétt danska ríkisútvarpsins að „túrbó kjúklingurinn“ hafi verið ræktaður til þess að stækka hraðar en venjulegur kjúklingur. Þeim er haldið innandyra allt sitt líf í litlu plássi.

33 dögum eftir fæðingu er dýrið orðið 2 kíló að þyngd. Líffæri og bein dýranna vaxa hins vegar ekki á sama hraða og geta sumir kjúklinganna ekki gengið daginn sem þeim er slátrað. Lausagönguhænur eru í samanburði 81 dag að stækka svo þær séu tilbúnar til slátrunar.

Kasper Lenbroch segir að salan á kjöti af lausagönguhænum hafi valdið fyrirtækinu verulegum vonbrigðum. Neytendur hafi í síauknum mæli valið ódýrara kjöt og segist Lenbroch finna mikinn mun eftir að Rússar réðust inn í Úkraínu í fyrra.

Danska ríkisútvarpið hefur eftir Brittu Riis, formanni dýraverndunarsamtaka í Danmörku, að fréttirnar af dræmri sölu á kjúklingi sem hafi það betur séu mikil vonbrigði. Hún segir aðstæður kjúklinganna sem haldið sé innandyra óboðlegar og hvetur Dani til að hafa velferð þeirra í huga þegar verslað er í matinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×