Viðskipti erlent

Óttuðust að ný gervi­greind gæti ógnað mann­kyninu

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Starfsmennirnir eru sagðir hafa skrifað stjórnendum fyrirtækisins bréf.
Starfsmennirnir eru sagðir hafa skrifað stjórnendum fyrirtækisins bréf. EPA-EFE/WU HAO

Starfsmenn bandaríska tæknifyrirtækisins OpenAI sem sérhæft hefur sig í gervigreind, eru sagðir hafa viðrað áhyggjur sínar af nýrri gervigreind sem fyrirtækið var að vinna að áður en Sam Altman, forstjóri þess var látinn fjúka.

Þetta kemur fram í umfjöllun Guardian um málið. Þar segir að ný útgáfa gervigreindarinnar, sem ber heitið Q*, hafi valdið sumum starfsmönnum svo miklum áhyggjum að þeir hafi skrifað stjórnendum fyrirtækisins bréf.

Segir breski miðillinn að þetta hafi gerst áður en Altman var vikið úr starfi forstjóra. Eins og fram hefur komið var Altman ráðinn aftur sem forstjóri fyrirtækisins tveimur dögum síðar. Starfsmenn og fjárfestar mótmæltu brottrekstrinum og verður stjórnarmeðlimum skipt út fyrir nýja til að greiða fyrir endurkomu hans.

Q* gervigreindin er sögð hafa getað leyst einfaldar stærðfræðiþrautir sem hún hafði ekki séð áður. Var hraði þróunar hennar svo mikill að starfsmenn hafi fyllst áhyggjum af því að gervigreindin gæti ógnað mannkyninu.

Fram kemur í frétt Guardian að gervigreind hafi hingað til ekki haft getuna til að leysa slíkar þrautir. Haft er eftir Andrew Rogoyski, sérfræðingi á sviði gervigreindar við háskólann í Surrey, að reynist þetta rétt sé um að ræða miklar framfarir.

Áður hafa fjölmargir sérfræðingar lýst yfir áhyggjum af þróun fyrirtækja líkt og OpenAI á gervigreind. Þeir hafa varað við því að þróun hennar sé of hröð en OpenAI framleiðir þekktustu gervigreind í heimi um þessar mundir, ChatGPT.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×