Innlent

Safna dósum svo grindvísk börn fái bangsa

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir og Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifa
Garðar, Kristinn og Darri stefna á að ganga aftur í hús í kvöld.
Garðar, Kristinn og Darri stefna á að ganga aftur í hús í kvöld. Vísir/Ívar Fannar

Síðustu daga hafa fyrirtæki, einstaklingar og verkalýðsfélög lýst yfir stuðningi við Grindvíkinga og boðið fram aðstoð. Nokkrir ungir drengir úr Laugardalnum vildu leggja sitt af mörkum til að aðstoða Grindvíkinga. Þeir safna nú dósum til að grindvísk börn geti eignast nýjan bangsa. 

Einhverjir íbúar í Laugarneshverfi ráku upp stór augu í gærkvöldi þegar þrír átta og níu ára gamlir drengir gengu hús úr húsi og báðu um dósir. 

Fréttamaður hitti þá Garðar, Kristinn og Darra. Aðspurðir hvers vegna þeir væru að safna dósum svaraði Garðar, „Fyrir Grindavík.“

„Til að þau geta fengið dót og spil og safnað sér fyrir einhverju,“ bætir Kristinn við. 

Er þetta sem sagt fyrir krakkana í Grindavík?

„Já,“ svara Kristinn og Darri einum rómi.

Sumir dónalegir 

Strákarnir segja suma hafa dregið yfirlýsingar þeirra um að söfnunin væri fyrir Grindvíkinga í efa, og vilja fullvissa Laugarnesbúa að peningarnir rati á réttan stað.

„Sumir eru dónalegir, sumir ekki,“ segir Kristinn. 

Af hverju?

„Ég veit það ekki,“ segja strákarnir. „Held út af því að við erum ekki með neinum foreldra eða eitthvað,“ segir Darri.

Garðar, Kristinn og Darri eru búnir að safna 23 fullum pokum af dósum eftir aðeins eitt söfnunarkvöld, og ætla að halda áfram alla vega í kvöld. 

Af hverju eruð þið að safna fyrir Grindavík?

„Við heyrðum bara frá fréttunum,“ segir Garðar. „Að það væru sprungur og eitthvað í götunni,“ segir Darri. „Í Grindavík,“ bætir Kristinn við. 

Hvað langar ykkur að þau kaupi fyrir dósapeningana?

„Kannski bara dót eða eitthvað,“ segir Kristinn. „Eða bangsa,“ segir Darri. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×