Veður

Vinda­samt syðst á landinu

Atli Ísleifsson skrifar
Hiti verður á bilinu núll til sjö stig að deginum þar sem verður mildast á Suðausturlandi.
Hiti verður á bilinu núll til sjö stig að deginum þar sem verður mildast á Suðausturlandi. Vísir/Vilhelm

Víðáttumikil lægð er nú suðaustur af Hvarfi á leið austur yfir Atlantshaf. Áhrifa hennar mun gæta að takmörkuðu leyti hér á landi en aðallega er það vindur sem við fáum frá henni og þá einna helst syðst á landinu, um 15 til 23 metra á sekúndu.

Frá þessu segir í tilkynningu á vef Veðurstofunnar. Þar kemur fram að að öðru leyti verði svipað veðurlag áfram sem og hitastig. Þannig má reikna með skúrir eða slydduéljum, en yfirleitt bjartviðri suðvestan- og vestanlands. Hiti verður á bilinu núll til sjö stig að deginum þar sem verður mildast á Suðausturlandi.

„Þar sem léttir til og sól skín er ágætt að hafa í huga að sólin er mjög lágt á himni þessa dagana og getur auðveldlega blindað ökumenn og þá er gott að vera með hreinar rúður, góð þurrkublöð og nóg af rúðuvökva,“ segir á vef Veðurstofunnar. 

Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag: Norðaustan 8-15 m/s, hvassast suðaustantil og dálitlar skúrir eða él, en bjartviðri á Suður- og Vesturlandi. Hiti 0 til 5 stig, mildast syðst.

Á föstudag: Hæg suðlæg eða breytileg átt, og lítilsháttar rigning eða slydda á víð og dreif, en þurrt fyrir austan. Hiti 0 til 5 stig suðvestantil, en annars hiti um frostmark.

Á laugardag: Austlæg átt, víða hæg. Dálítil rigning eða slydda með köflum, en þurrt að kalla fyrir norðan og austan. Hiti breytist lítið.

Á sunnudag, mánudag og þriðjudag: Austanátt með dálítilli úrkomu suðaustantil, en annars þurrt að kalla. Fremur svalt í veðri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×