Kraftur og mýkt á sama tíma Mustang Mach - E 4. október 2023 08:54 Mustang Mach-E er búinn stórri 99 kw drifrafhlöðu með eldsnögga hraðhleðslu. Við bestu aðstæður er bíllinn með 550 km drægni. Ford Mustang Mach-E er hreinn rafbíll sem smellpassar inn í íslenskar aðstæður. Hann er fjórhjóladrifinn og þykir eintaklega góður í snjó og hálku, hefur mikla drægni og er búinn eldsnöggri hraðhleðslu.
Keppnislið FM957 ók Premium LR AWD útfærslunni af Mustang Mach-E í þrautabrautinni Leikið um landið, þar sem Fm957, Bylgjan og X977 ferðuðust hringinn og kepptu í mismunandi þrautum. Þeir Rikki G og Egill Ploder voru hæstánægðir með bílinn. Dagskrárgerðarmennirnir Rikki G og Egill Ploder á FM957 voru ánægðir eftir hringferð um landið á Mustang Mach-E- Premium LR AWD. „Ég hafði aldrei farið hringinn fyrr en í þessari viku. Þetta var stórkostleg upplifun og hún varð að sjálfsögðu enn betri á þessum rosalega kagga,“ segir Egill. Það hafi verið ólíkt að keyra langar vegalengdir í rafbíl en í bensín- eða díselbíl. „Það er minni hávaði og meiri notalegheit í rafbílnum en fyrst en fremst myndi ég segja að upplifunin á bæði krafti og mýkt á sama tíma hafi verið öðruvísi en í bensín- eða dísilbílum. Það var líka virkilega skemmtilegt að prófa að gefa aðeins inn inn á milli og finna fyrir því hvað rafmagnið keyrir þig fljótt af stað,“ segir Egill en Premium LR AWD útfærslan er 5.1 sekúndur upp í 100 km á klukkustund, 351 hestöfl og með 580 nm tog. Hann er einnig fáanlegur í GT útfærslu sem er 487 hestöfl og þá einungis 3,7 sekúndur upp í 100. Ford Mustang Mach-E er fjórhjóladrifinn og þykir eintaklega góður í snjó og hálku Lausir við hleðslukvíða Mustang Mach-E er búinn stórri 99 kw drifrafhlöðu með eldsnögga hraðhleðslu. Við bestu aðstæður er bíllinn með 550 km drægni. Þeir Rikki og Egill upplifðu því engan hleðslukvíða á leiðinni hringinn í kringum landið. „Það gekk virkilega vel að hlaða. Það er búið að koma upp helling af hleðslustöðvum frá mismunandi fyrirtækjum allan hringinn og maður lendir ekki í einu einasta veseni að vera „tæpur“ á kílómetrum ef ferðalagið er planað aðeins. Hleðslan tekur líka stuttan tíma á hverjum stað fyrir sig sem þýðir að maður getur nýtt pásurnar í að skoða staðina á landinu sem þú hefðir jafnvel ekki stoppað á,“ segir Egill. Nóg pláss og mikil þægindi Mustang Mach-E er vinsæll ferða- og fjölskyldubíl þar sem hann er stór og stæðilegur bíll sem rúmar auðveldlega 5 manns í sæti. Í honum er mikið farangursrými en heildarlengd bílsins er 4,713 m og breiddin er 1,881 m. 402 lítra farangursrými er í bílnum upp að toppi baksæta og ef baksætin eru felld niður verður farangursrýmið 1420 lítra. Egill og Rikki voru með talsverðan farangur í ferðinni og þá kom sér afar vel að geta hlaðið í „frunkið“, sem er auka 100 lítra farangursrými að framan. Bíllinn er alltaf heitur, með forhitara, upphituðu stýri og hita í framrúðu. Sætin eru einnig upphitanleg, leðurlædd og hægt að stilla þau á fjölmarga vegu. Þá eru B&O hljómtæki í bílnum með 10 hátölurum í boði sem féll vel í kramið hjá Agli og Rikka. Upphitað stýri og hiti í framrúðu eykur þægindin. Þöndu Celine Dion í botn „Ég verð að hrósa græjunum. Þessir Bang og Olufsen hátalarar eru einir þeir bestu á markaðnum af ástæðu,“ segir Egill. „Það var unun að spila mismunandi tónlistarflokka í hágæða græjum í góðri bílferð. Lag sem við mælum sérstaklega með í græjunum. The Prayer - Celine Dion og Andrea Boccelli. Vá!Hitinn í stýrinu var mjög þægilegur sérstaklega þegar við vorum að keyra í kalda loftinu fyrir norðan, sætin plássmikil og mjúk og snertiskjárinn virkilega vel „responsive“ sem skiptir miklu máli að mínu mati,“ segir Egill en 15,5 tommu snertiskjár er í bílnum og þráðlaus hleðsla fyrir farsíma. „Að sjá ljósin í innréttingunni breytast og að heyra bílinn svona hlaða sig upp var rosalegt.“ Var einhver nýr eiginleiki við bílinn sem kom þér skemmtilega á óvart? „Ég verð að nefna „frunkið“ og mismunandi keyrslustillingar bílsins voru líka skemmtilegar. Við hentum honum í eitt skipti í „Untamed“ stillinguna (ótemjustilling) sem var upplifun út af fyrir sig. Að sjá ljósin í innréttingunni breytast og að heyra bílinn svona hlaða sig upp var rosalegt. Mismunandi eiginleikar snertiskjásins eru líka rosalegur fítus,“ Heilt yfir var þetta ótrúlega góð og skemmtileg upplifun að keyra þennan bíl,“ segir Egill.
Bílar Vistvænir bílar Mest lesið „Krakkar sem gistu hjá okkur vissu ekki hvað var að gerast!“ Atvinnulíf Hinn almenni borgari þurfi ekki að dæla í sig steinefnum Neytendur Blár Opal seldist á fimmtán þúsund Neytendur Brimborg lækkar verð á rafbílnum Volvo EX30 Samstarf „Sársaukafullt að sjá“ IKEA vasa dýrari í Góða hirðinum Neytendur MAST varar við ólöglegu innihaldsefni í fæðubótarefni Neytendur Leiðtogakulnun: Þegar yfirmaðurinn er alveg búinn á því Atvinnulíf Festi fær að kaupa Lyfju Neytendur Ekki lengur hægt að sjá hvað aðrir „læka“ Viðskipti erlent Danir höndla ekki kóresku pakkanúðlurnar Viðskipti erlent Fleiri fréttir Minnir á flotta tannlæknastofu Brimborg lækkar verð á rafbílnum Volvo EX30 Nýr Peugeot E-3008 rafbíll frumsýndur í Brimborg Bílaumboðið Una skrifar undir samning við XPENG Skelltu þér í sólina í sumar Glæsilegir salir sem henta fyrir fjölbreytta viðburði Ánægðari börn, foreldrar og starfsfólk og öflugt fagstarf Brimborg lækkar verð á Polestar Iðnaðarmaður ársins 2024 er fundinn Ofursmart heilsárshús Glæsilegar íbúðir með frábæru útsýni Ný leið fyrir fyrirtæki til að rafvæða bílaflotann Toyota fagnar sumrinu á laugardag Þú þarft ekki að óttast rigninguna Eitt glæsilegasta byggingarsvæði höfuðborgarsvæðisins Kann best við sig í háspennunni Ný og glæsileg Icebreaker deild opnar í dag Vinnur við að bjarga okkur frá því að drukkna í eigin kúk Nýr CLE 53 frá Mercedes-AMG frumsýndur á laugardag Umferðareiður kjötiðnaðarmaður tilnefndur Landvörðurinn sem endaði í píparanum Velur brauðtertu fram yfir heitan rétt - Gunnar Þór er tilnefndur í Iðnaðarmanni ársins Vill sigra svo hún geti skilað lánsverkfærum Skímó í uppáhaldi - Ásmundur Goði tilnefndur í Iðnaðarmanni ársins Heitur pottur og sauna, tvenna sem getur ekki klikkað! Merkum áfanga fagnað í verslun BYKO á Selfossi Bein útsending: Opinn kynningarfundur vegna útboðs Íslandshótela Greiðsluáskorun VÍS gefið yfir 1.100 fjölskyldum barnabílspegla í sængurgjöf Hraðhleðslur spretta upp sem gorkúlur - tvær opna á Þórshöfn Sjá meira