Burstarnir lentu og jörðin byrjaði að skjálfa bpro 21. júlí 2023 11:32 Wonder Brush burstarnir frá HH Simonsen hafa farið sigurför um heiminn og selst í um sex milljónum eintaka. Nú er kominn á markað Wonder Brush bursti hannaður af íslensku heildsölunni bpro. Mynd/Kári Sverriss Nýi HH Simonsen Wonder Brush hárburstinn, sem er hannaður af íslensku heildsölunni bpro í samstarfi við HH Simonsen, hefur heldur betur slegið í gegn hér á landi undanfarna daga.
Hárburstarnir, sem eru seldir undir merkinu Wonders of Iceland, koma í tveimur útgáfum, annar inniheldur mynd af norðurljósum meðan eldgosið við Fagradalsfjall prýðir hina útgáfuna. Wonder Brush burstarnir frá HH Simonsen hafa farið sigurför um heiminn og selst í um sex milljónum eintaka. Þeir eru hannaðir til að fara vel með hárið og hársvörðinn en sveigjanlegir SmartFlex pinnar koma í veg fyrir að hárið brotni og endar þess klofni. Mynd/Thelma Arngríms „Það hefur alltaf verið draumur hjá mér að framleiða vörur fyrir íslenskan markað í samstarfi við eitthvað af þeim frábæru merkjum sem við bjóðum upp á,“ segir Baldur Rafn Gylfason hárgreiðslumeistari sem rekur heildsöluna bpro ásamt eiginkonu sinni Sigrúnu Bender en þau flytja inn nokkur af flottustu merkjunum í húð- og hárvörum sem fást hér á Íslandi. „Eitt af fyrstu merkjunum sem við kynntum fyrir Íslendingum var danski framleiðandinn HH Simonsen. Fyrirtækið er þekkt um allan heim fyrir hágæða raftæki og hárvörur og hina geysivinsælu og háþróuðu flækjubursta, Wonder Brush, sem Íslendingar bókstaflega elska.“ Mikil vinna var lögð í þróun Wonders of Iceland burstanna en hún hófst áður en Covid skall á. „Það var því mikil gleðistund þegar fyrsta sendingin barst til landsins en svo skemmtilega vildi til að það gerðist tveimur dögum eftir að gosið við Litla-Hrút hófst,“ segir Baldur. Burstarnir eru því skemmtileg viðbót við þá flóru minjagripa sem ferðamenn kaupa hér á landi en ólíkt mörgum þeirra endist burstinn í langan tíma og hefur mikið notagildi. Wonders of Iceland burstarnir henta einnig vel sem tækifærisgjafir fyrir bæði Íslendinga sem og erlenda vini og ferðalanga. Mikil vinna á bak við nýju burstana Rekja má upphafið að þróun burstanna til haustsins 2019 en þá fékk heildsalan til liðs við sig Lukku Óðinsdóttur sem starfsnema í markaðsdeild en í dag er Lukka partur af starfsmannateyminu. „Hluti af námi hennar úti í Danmörku var vöruhönnun og fannst okkur því kjörið tækifæri fyrir bæði okkur og hana að nýta það innanhúss. Þannig kviknaði sú hugmynd að hanna og láta framleiða eigin Wonder Brush hárbursta í samstarfi við HH Simonsen.“ Hann segir hugmyndavinnuna hafa farið vel af stað og þau hafi verið mjög spennt fyrir að keyra verkefnið í gang. „En þá skall Covid á heimsbyggðina og eins og svo margt annað í heiminum fór skemmtilega verkefnið aftur ofan í skúffu og við vissum ekkert hvort eða hvenær þetta samstarf hreinlega færi aftur í gang.“ Myndir af norðurljósum og eldgosinu við Fagradalsfjall prýða nýju burstana. Myndir/Thelma Arngríms En vinir þeirra hjá HH Simonsen voru svo sannarlega ekki búnir að gleyma verkefninu og strax og tækifæri gafst settu þau allt á fullt aftur í nóvember 2022. „Átta mánuðum síðar eru burstarnir komnir til landsins og komnir í dreifingu um land allt. Við erum algjörlega í skýjunum með útkomuna og viðtökurnar og hlökkum bara til að bæta fleiri burstum í línuna. Við erum sem dæmi tilbúin í samstarf við fyrirtæki í ferðaþjónustu ef þau hafa skemmtilegar hugmyndir varðandi myndir á burstana.“ Sem fyrr segir prýða myndir af norðurljósum og eldgosinu við Fagradalsfjall burstana. „Það að taka góða ljósmynd af norðurljósum er ekki á allra færi svo eftir mikla leit af hinni fullkomnu mynd þá varð fyrir valinu ljósmynd úr einkasafni Óðins Eymundssonar sem hann tók af af dansandi norðurljósum rétt fyrir utan Höfn í Hornafirði.“ Mynd/Thelma Arngríms Það var strax ákveðið að myndin sem ætti að prýða eldgosaburstann þyrfti að vera af því einstaka sjónarspili sem eldgosið við Fagradalsfjall bauð heiminum upp á segir Baldur. „Fyrir valinu varð mynd eftir hinn hæfileikaríka ljósmyndara Andra Jónasson en myndin sýnir vel kraft og fegurð hraungossins.“ Öll grafísk hönnun á burstunum og umbúðum var í höndum Maríu Katrínar Jónsdóttur og um textasmíði sá Ingunn Sigurpálsdóttir. Baldur segir að Wonder Brush burstarnir ættu að vera til á öllum heimilum enda henti þeir öllum aldurshópum. „Þá skiptir engu máli hvort hárið sé stutt eða sítt, hrokkið eða slétt því burstinn er einstakur fyrir allt hár. Burstinn losar allar flækjur sársaukalaust og hentar mjög vel til að greiða bæði blautt og þurrt hár.“ Á bpro.is getur þú séð allar þær vörur sem bpro býður upp á en þar má einnig finna fullt af fróðleik og góðum ráðum varðandi umhirðu á húð og hári. Hér getur þú skoðað Wonders of Iceland flækjuburstana nánar.
Hár og förðun Mest lesið Icelandair segir upp 57 flugmönnum Viðskipti innlent „Krakkar sem gistu hjá okkur vissu ekki hvað var að gerast!“ Atvinnulíf Hinn almenni borgari þurfi ekki að dæla í sig steinefnum Neytendur Brimborg lækkar verð á rafbílnum Volvo EX30 Samstarf Blár Opal seldist á fimmtán þúsund Neytendur „Sársaukafullt að sjá“ IKEA vasa dýrari í Góða hirðinum Neytendur MAST varar við ólöglegu innihaldsefni í fæðubótarefni Neytendur Festi fær að kaupa Lyfju Neytendur Danir höndla ekki kóresku pakkanúðlurnar Viðskipti erlent Leiðtogakulnun: Þegar yfirmaðurinn er alveg búinn á því Atvinnulíf Fleiri fréttir Minnir á flotta tannlæknastofu Brimborg lækkar verð á rafbílnum Volvo EX30 Nýr Peugeot E-3008 rafbíll frumsýndur í Brimborg Bílaumboðið Una skrifar undir samning við XPENG Skelltu þér í sólina í sumar Glæsilegir salir sem henta fyrir fjölbreytta viðburði Ánægðari börn, foreldrar og starfsfólk og öflugt fagstarf Brimborg lækkar verð á Polestar Iðnaðarmaður ársins 2024 er fundinn Ofursmart heilsárshús Glæsilegar íbúðir með frábæru útsýni Ný leið fyrir fyrirtæki til að rafvæða bílaflotann Toyota fagnar sumrinu á laugardag Þú þarft ekki að óttast rigninguna Eitt glæsilegasta byggingarsvæði höfuðborgarsvæðisins Kann best við sig í háspennunni Ný og glæsileg Icebreaker deild opnar í dag Vinnur við að bjarga okkur frá því að drukkna í eigin kúk Nýr CLE 53 frá Mercedes-AMG frumsýndur á laugardag Umferðareiður kjötiðnaðarmaður tilnefndur Landvörðurinn sem endaði í píparanum Velur brauðtertu fram yfir heitan rétt - Gunnar Þór er tilnefndur í Iðnaðarmanni ársins Vill sigra svo hún geti skilað lánsverkfærum Skímó í uppáhaldi - Ásmundur Goði tilnefndur í Iðnaðarmanni ársins Heitur pottur og sauna, tvenna sem getur ekki klikkað! Merkum áfanga fagnað í verslun BYKO á Selfossi Bein útsending: Opinn kynningarfundur vegna útboðs Íslandshótela Greiðsluáskorun VÍS gefið yfir 1.100 fjölskyldum barnabílspegla í sængurgjöf Hraðhleðslur spretta upp sem gorkúlur - tvær opna á Þórshöfn Sjá meira