Bílar

Glæsi­drossíur til sýnis við Hörpu

Viktor Örn Ásgeirsson skrifar
Einhver ætlar greinilega að keyra hringinn í kringum landið á ljósbláum Ferrari.
Einhver ætlar greinilega að keyra hringinn í kringum landið á ljósbláum Ferrari. Stöð 2

Fjöldi manns lagði leið sína niður að Hörpu í dag til að berja augum mikinn flota af glæsikerrum sem þar var til sýnis. Bílarnir voru alls fimmtíu talsins, af öllum stærðum og gerðum, allt frá klassískum sportbílum upp í spánnýjar ofurdrossíur.

Bifreiðarnar spönnuðu sjötíu ára aldursbil; sú elsta var af árgerð 1952 og sú nýjasta var framleidd í fyrra.

Hópu frá Frakklandi sem kallar sig RallyStory stendur á bak við bílana en markmiðið er að keyra hringinn í kringum landið. Dagskrá hópsins er nokkuð vegleg, í takt við bílana, og stendur yfir frá 20. maí til 26. maí.

Nokkuð vegleg dagskrá með viðkomu á hinum og þessum stöðum á landinu.RallyStory

Í kvöld gistir hópurinn á Hótel Edition við Hörpu og á morgun verður ekið í Borgarnes, þar sem gist verður á Hótel Hamri. Því næst beint til Siglufjarðar og þaðan á Mývatn, svo fátt eitt sé nefnt.

Fyrir áhugasama er hægt að nálgast dagskrá hópsins hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×