Golf

Lowry hástökkvari dagsins og blandar sér í bar­áttuna

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Shane Lowry lyfti sér upp um 27 sæti með spilamennsku sinni í dag.
Shane Lowry lyfti sér upp um 27 sæti með spilamennsku sinni í dag. Michael Reaves/Getty Images

Írinn Shane Lowry átti algjörlega ótrúlegan hring á þriðja degi PGA-meistaramótsins í golfi er hann lék á níu höggum undir pari í dag.

Með spilamennsku sinni er Lowry svo sannarlega búinn að blanda sér í toppbaráttuna á mótinu og þegar þetta er ritað situr hann jafn Xander Schauffele og Sahith Theegala í öðru sæti mótsins.

Lowry fékk sex fugla á fyrri níu holum dagsins og þrjá á seinni níu og stökk samtals upp um 27 sæti. Þegar þetta er ritað er hann einu höggi á eftir forystusauðnum Colin Morikawa sem hefur leikið fyrstu 15 holur dagsins á þremur höggum undir pari.

Á eftir fjórmenningunum sem verma efstu tvö sætin sitja þeir Justin Rose, Robert MacIntyre og Viktor Hovland saman í fimmta sæti á tólf höggum undir pari, en Rose lék hring dagsins á sjö höggum undir pari og stökk upp um 18 sæti.

Það er því ljóst að spennan verður mikil fyrir lokadeginum sem spilaður verður á morgun. Bein útsending frá lokadegi mótsins hefst klukkan 17:00 á Stöð 2 Sport 4.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×