Innlent

„Köld vatns­gusa“ framan í skólasamfélagið í Laugar­dal

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Björn Kristjánsson, kennari í Laugarlækjarskóla, segir ákvörðun skóla- og frístundarráðs bera vott um virðingarleysi.
Björn Kristjánsson, kennari í Laugarlækjarskóla, segir ákvörðun skóla- og frístundarráðs bera vott um virðingarleysi. Vísir/Samsett

Björn Kristjánsson, foreldri og kennari í Laugarlækjarskóla, segir ákvörðun Skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar að stefna að byggingu nýs unglingaskóla í Laugardalnum kalda vatnsgusu framan í skólasamfélagið.

Stefnan fari þvert á fyrri ákvörðun ráðsins sem var gerð í samráði við hagaðila og byggði á að skólarnir þrír í hverfinu héldu sér í núverandi mynd og byggt yrði við þá alla til að mæta auknum nemendafjölda.

Virðingarleysi af hálfu borgaryfirvalda

Björn segist sjá spennandi tækifæri í byggingu nýs skóla en að ákvörðunin beri vott um virðingarleysi af hálfu borgaryfirvalda þar sem foreldrar höfðu látið að sér kveða með undirskriftasöfnun til að koma í veg fyrir að farið yrði í þá vegferð sem nú stendur til.

Í skýrslu starfshóps um undirbúning framkvæmda er varðar mótun skóla- og frístundastarfs í Laugardalnum til framtíðar sem kynnt var í gær kemur fram að forsendur hafi breyst frá ákvörðun ráðsins frá árinu 2022 og því hafi þurft að breyta um áætlun. Umfangsmikil viðhaldsþörf sé á byggingum skólanna þriggja og viðhaldsframkvæmdirnar samhliða byggingu viðbygginga séu taldar raska skólastarfi meira og í lengri tíma en upphaflega var gengið út frá.

„Ég get ekki séð að það hafi neinar forsendur breyst í Laugardalnum. Hvorki nemendafjöldalega né skipulagslega. Fyrir mér virkar þetta eins og einhver fyrirsláttur til að koma í gegn einhverri hugmynd sem pólitíkin er spennt fyrir,“ segir Björn þó og segir það hafa legið fyrir í langan tíma hve umfangsmikil þörfin á viðhaldi bygginganna sé.

Langt samráðsferli virt að vettugi

Hann segir að það séu engar fréttir fyrir starfsmenn skólanna eða foreldra barna í skólunum að þörfin á framkvæmdum sé mikil. Fyrst og fremst stafar óánægja Björns af því að samráð borgarinnar við starfsfólk og foreldra hafi verið virt að vettugi.

„Það sem maður er kannski fyrst og fremst ósáttur með er hvernig er farið að þessu. Það er farið í gegnum langt ferli þar sem eru teiknaðar upp einhverjar sviðsmyndir og kallað eftir samráði við skólasamfélagið við íbúasamfélagið og svo er tekin ákvörðun. Svo tveim árum seinna er með einu pennastriki sú ákvörðun felld úr gildi án þess að það sé haft neitt samráð við hagaðila í málinu, sem eru nemendur, starfsfólk og foreldrar,“ segir Björn.

Nú sé búið að taka ákvörðun sem stangast á við þá sem tekin var fyrir tveimur árum síðan og á þeim tíma hafi húsnæðisvandamál skólahverfisins aðeins ágerst. Starfsfólk hafi þurft að fara í veikindaleyfi vegna myglu og skólarnir fengið að grotna enn frekar niður án þess að yfirvöld hafi aðhafst neitt.

„Manni bara fallast hendur. Svo kemur þetta eins og köld vatnsgusa framan í fólk og þvert á það sem búið var að ákveða eftir samráð sem tók allt of langan tíma,“ segir Björn.


Tengdar fréttir

For­eldrar í Laugar­dal fagna á­kvörðun skóla- og frí­stunda­ráðs

Byggt verður við alla þrjá grunnskólana í Laugardal til að mæta fjölgun nemenda í hverfinu ef nýsamþykkt tillaga skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur nær fram að ganga. Þetta ákvað ráðið á fundi í dag. Foreldrar í hverfinu anda léttar eftir margra mánaða baráttu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×