Innlent

Mót­mælendur gegn brott­vísun hindruðu för lög­reglu­bíls

Kjartan Kjartansson skrifar
Töluverður viðbúnaður lögreglu var við Héraðsdóm Reykjaness í Hafnarfirði vegna mótmælanna.
Töluverður viðbúnaður lögreglu var við Héraðsdóm Reykjaness í Hafnarfirði vegna mótmælanna. Vísir

Hópur mótmælenda reyndi að hindra för lögreglubíls eftir að einn þeirra var handtekinn nærri Héraðsdómi Reykjaness í Hafnarfirði í kvöld. Fólkið mótmælti fyrirhugaðri brottvísun þriggja nígerískra kvenna úr landi.

Samtökin No Borders boðuðu til mótmæla fyrir utan Héraðsdóm Reykjaness þar sem átti að taka fyrir gæsluvarðhaldskröfu á hendur þriggja nígerískra kvenna sem var synjað um alþjóðlega vernd í fyrra.

Konurnar þrjár heita Blessing Newton, Esther og Mary. Þær voru í hópi flóttafólks sem fékk endanlega synjun um alþjóðlega vernd í ágúst. Þær voru í framhaldinu sviptar þjónustu á Íslandi í krafti þá nýsamþykktra útlendingalaga. Konurnar komu frá Ítalíu þar sem þær sögðust hafa verið fórnarlömb mansals um árabil.

Á einum tímapunkti reyndu nokkrir mótmælendur að hindra för lögreglubíl á Linnetsstíg og síðan á Strandgötu á leið frá dómshúsinu. Á myndbandsupptöku má sjá lögreglumenn hlaupa á eftir mótmælendum í átt að nærliggjandi hringtorgi.

Vildu að konurnar sæju vinsamleg andlit

Þorgerður Jörundsdóttir, kennari við Dósaverksmiðjuna, sem tók þátt í mótmælunum í kvöld segist aldrei hafa séð eins þunga viðveru lögreglu áður. Lögreglumenn hafi strengt borða í kringum dómshúsið og ýtt fólki sem vildi að konurnar sæju það og heyrðu í því markvisst burt.

Maðurinn sem var handtekinn sé í sömu stöðu og konurnar þrjár og hafi dvalið með þeim í neyðarskýli um margra mánaða skeið. Hann hafi gengið í átt frá lögreglumönnum eftir einhver orðaskipti þegar einn þeirra handtók hann. Þorgerður segir að lögreglumenn eigi að hafa þjálfun í að draga úr spennnu frekar en að magna hana upp. Að hennar mati hafi aðeins einn lögreglumaður misst yfirvegun sína í stað þess að láta aðstæður fjara út.

Fjölmennt lögreglulið var við Héraðsdóm Reykjaness í kvöld.Aðsend

Að öðru leyti hafi ekki komið til átaka á mótmælunum. Viðstaddir hafi verið fólk sem þekkir konurnar eins og hún sjálf og einhverjir frá No Borders- samtökunum. Sjálf kenndi Þorgerður konunum þremur íslensku í Dósaverksmiðjunni.

„Við vorum þarna konur sem hafa verið í tengslum við þær þrjár. Við vorum þarna aðallega til þess að þær sæju vinsamleg andlit, að þær vissu að það væri til fólk sem styddi þær,“ segir Þorgerður.

Sema Erla Serdaroglu frá Solaris, hjálparsamtökum fyrir hælisleitendur, skrifaði á Facebook í kvöld að konurnar þrjár hefðu verið handteknar og dregnar fyrir dómstól vegna þess að þær sóttu um íslenskan ríkisborgararétt. Til standi að flytja þær nauðugar til Nígeríu innan skamms.

Ekki hefur náðst í lögmann kvennanna í kvöld.


Tengdar fréttir

„Ég veit ekki hvað þau vilja að við gerum“

Flótta­konan Blessing Newton segist ekki vita hvert hún eigi að leita eftir að henni á­samt hópi flótta­fólks var gert að yfir­gefa húsa­kynni Embættis ríkislögreglustjóra í Hafnar­firði í dag. Hún hefur verið svipt réttindum eftir að hafa fengið endan­lega synjun um al­þjóð­lega vernd. Önnur flóttakona segist ráðalaus. Mál þeirra vekja spurningar varðandi ný útlendingalög.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×