Innlent

Segja graf­alvar­legt mál að fresta at­kvæða­greiðslu

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Fulltrúar minnihlutans í bæjarstjórn Ölfus segja bæjarstjórnina hafa tekið lýðræðislegan rétt af íbúum, og treysti þeim ekki til að hafa vit fyrir sjálfum sér.
Fulltrúar minnihlutans í bæjarstjórn Ölfus segja bæjarstjórnina hafa tekið lýðræðislegan rétt af íbúum, og treysti þeim ekki til að hafa vit fyrir sjálfum sér. Vísir/Arnar

Fulltrúar minnihlutans í Ölfusi segja frestun atkvæðagreiðslu um deiliskipulag vegna mölunarverksmiðju grafalvarlegt mál, og segjast munu leita álits sérfróðs fólks um það hvort vafi sé á lögmæti ákvörðunarinnar.

Í dag átti að fara fram atkvæðagreiðsla íbúa í Ölfusi um deiliskipulag fyrir fyrirhugaða grjótmulningsverksmiðju þýska fyrirtækisins Heidelberg í Þorlákshöfn. Ákveðið var á bæjarstjórnarfundi í gær að fresta kosningunum um óákveðinn tíma. Bréf Eggerts Þórs Kristóferssonar, forstjóra landeldisfyrirtækisins First Water, þar sem lýst var yfir áhyggjum af fyrirhuguðum framkvæmdum Heidelberg, er miðlægt í málinu. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, meirihlutinn í Ölfusi, sögðu ekkert annað í stöðunni en að fresta atkvæðagreiðslunni. Bréf First Water fylli málið vafa og óvissu, en vinnubrögðin séu furðuleg.

Meirihlutinn treysti íbúum ekki til að mynda sér skoðun á verkefninu

Ása Berglind Hjálmarsdóttir, og Hrönn Guðmundsdóttir fulltrúar minnihlutans í Ölfusi, sögðu í aðsendri grein á Vísi í dag að verið væri að taka lýðræðislegan rétt af íbúum. Þær segjast ekki skilja á hvaða lagagrundvelli meirihluti bæjarstjórnar byggi ákvörðun sína. Það sé grafalvarlegt mál að fresta kosningum, og þau ætli að kanna hvort vafi sé á lögmæti ákvörðunarinnar.

Þær segja að meirihlutinn hafi talað niður til First Water „fyrir það að hafa bent á það augljósa og krefja þau nú um rökstuðning fyrir sínum áhyggjum sem snúa að sambúð umhverfisvæns matvælaiðnaðar og risavaxinnar grjótmulningsverksmiðju.“ Áhyggjur snúi meðal annars að því að jarðsjórinn sem þau noti í kerin sín gæti mengast af skipaumferðinni sem á að koma að höfninni sem Heidelberg vill byggja. Rökstuðningur liggi fyrir í umsögn Heilbrigðiseftirlits Suðurlands.

Þær segja að ljóst sé að með frestun íbúakosninganna sé ljóst að meirihlutinn beri enga virðingu fyrir lýðræðinu og treysti ekki íbúum til að mynda sér skoðun á verkefninu. Engar forsendur hafi breyst, það sjónarmið hafi alltaf verið á lofti að fyrirætlanir Heidelberg um stórfellda námuvinnslu fari ekki saman með hreinni matvælaframleiðslu. 

First Water hafi stigið fram og aðeins bent á hið augljósa, og það ætti ekki að breyta neinu um fyrirhugaðar kosningar.

Málið áfellisdómur yfir vinnubrögðum meirihlutans

Þá segja fulltrúar minnihlutans að ljóst hafi verið þegar ákvörðunin var tekin um að boða til bindandi kosninga, að skipulagsferli verkefnisins væri ekki lokið, og fyrirséð væri að nýjar upplýsingar myndu líta dagsins ljós. Það hafi þó ekki komið í veg fyrir að boðað hafi verið til kosninga. Nýjar upplýsingar sem litu dagsins ljós hefðu því ekki átt að koma í veg fyrir boðaða atkvæðagreiðslu.

Þá vitna þær í orð formanns bæjarráðs Ölfuss, sem sagði í útvarpsviðtali daginn sem bréfið barst frá First Water 15. maí, að hann treysti íbúum fullkomlega til að vega og meta gögnin og kjósa eftir sinni eigin sannfæringu. Þær segja þetta greinilega greinilega ekki eiga lengur við og meirihlutinn treysti íbúum ekki til að hafa vit fyrir sjálfum sér.


Tengdar fréttir

Hundrað milljarða fjár­festing í upp­námi

Eggert Þór Kristófersson forstjóri hefur, fyrir hönd First Water hf., ritað bæjarstjórn Þorlákshafnar afdráttarlaust bréf þar sem hann lýsir sig algjörlega andsnúinn því að mölunarverksmiðja Heidelberg rísi í næsta nágrenni við starfsemi fyrirhugaðar matvælaframleiðslu.

Fresta í­búa­kosningu í Ölfusi um mölunar­verk­smiðju

Bæjarstjórn Ölfuss ákvað síðdegis að fresta íbúakosningu um deiluskipulag fyrir mölunarverksmiðju sem átti að hefjast á morgun. Vísað er til þess að bréf forstjóra First Water hafi fyllt málið vafa og óvissu sem ekki verði við unað.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×