Erlent

Mynd­band sýnir á­rás Diddy

Jón Þór Stefánsson skrifar
Mörg mál er varða meint kynferðisbrot Sean „Diddy“ Combs eru til meðferðar hjá dómstólum vestanhafs.
Mörg mál er varða meint kynferðisbrot Sean „Diddy“ Combs eru til meðferðar hjá dómstólum vestanhafs. Getty

Myndefni sýnir tónlistarmanninn Sean „Diddy“ Combs ráðast gegn fyrrverandi kærustu hans, Cassie Ventura. Myndefnið er frá árinu 2016 úr öryggismyndavélum InterContinental-hótelsins í Los Angeles-ríki Bandaríkjanna.

Í myndskeiði sést Diddy grípa eða rífa harkalega í Ventura, sem var þáverandi kærasta hans. Þá sést hann sparka í hana á meðan hún liggur, og draga hana eftir gólfi hótelsins.

Diddy kærður fyrir ofbeldi í garð Ventura í nóvember í fyrra, en málið var leyst með dómsátt. Þau áttu í ástarsambandi sem varði í rúman áratug.

CNN, sem birtir myndbandið, segir að ásakanirnar sem voru gefnar á hendur Diddy þá passi við það sem sjáist í myndbandinu.

Í umræddu myndbandi sést Ventura ganga úr hótelherberginu fram á gang. Skömmu síðar eltir Diddy hana, að því er virðist nakinn með handklæði um sig miðjan, og rífur í Ventura sem fellur í jörðina fyrir vikið. Síðan sést hann sparka í hana á meðan hún liggur í jörðinni. Þar á eftir dregur hann hana meðfram gólfinu í örskamma stund, en virðist hætta við og gengur í burtu.

Þá sést Diddy einnig kasta ótilgreindum hlutum í átt að henni.

Líkt og áður segir gerðu Diddy og Ventura dómsátt á síðasta ári, en fram kemur að hún hafi ekki viljað tjá sig um málið. Hins vegar er haft eftir lögmanni hennar að myndbandið sýni fram á sannleiksgildi frásagnar hennar.

Diddy hefur sjálfur neitað að hafa beitt kærustu sína ofbeldi. Talsvert fleiri mál er varða meint kynferðisbrot Diddy eru til rannsóknar eða til meðferðar dómstóla vestanhafs eins og stendur.


Tengdar fréttir

Ásökunum gegn frægum rigndi inn á lokametrunum

Undanfarna daga hefur fjöldi frægra Bandaríkjamanna verið sakaðir um fyrir kynferðisbrot. Í gær var greint frá slíkum ásökunum á hendur borgarstjóra New York-borgar Eric Adams, og í dag er greint frá meintum brotum rapparans Sean „Diddy“ Combs.

P. Diddy kærður fyrir þátttöku í hópnauðgun

Bandaríski rapparinn og frumkvöðullinn Sean Combs, betur þekktur sem P. Diddy, hefur verið kærður fyrir þátttöku í hópnauðgun. Nauðgunin átti sér stað árið 2003 og var fórnarlambið sautján ára gömul stelpa.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×