Skoðun

Hvar er Reykja­vegur?

Ari Trausti Guðmundsson skrifar

Árið 1995 vorum við Pétur Þorleifsson, ferðagarpur og rithöfundurt, fengnir til þess verkefnis að hanna langa gönguleið á Reykjanesskaga. Verkefnið var unnið undir stjórn Péturs Rafnssonar, þá formanns Ferðamálasamtaka höfuðborgarsvæðisins, á vegum sérstakrar samstarfsnefndar nær allra sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum. Gangan um Reykjaveg hefst á Nesjavöllum og endar við sjó hjá Reykjanesvita, alls sjö áfangar, sá lengsti um 20 km (sjá t.d. https://ferlir.is/reykjavegurinn/).

Leiðin var stikuð árið eftir. Auk Bláfjallsskála átti að nýta skála við Þorbjörn og skála á Hengilssvæðinu en sá stóð ekki lengi við. Ég samdi leiðarlýsingu sem var prufuprentuð en aldrei gefin út í dreifanlegu magni. Skemmst er frá að segja að ekki tókst að skálavæða leiðina, ekki að útbúa tjaldstæði eða tryggja aðgang að vatni. Ástæðan var tvíþætt. Nægt fjármagn fékkst ekki né samningar hjá sveitarfélögunum sem komu að verkefninu og ekki tókst heldur finna rekstarform og rekstraraðila. Var leiðin nýtt um tíma til raðgöngu, þ.e. ein dagleið í einu. Stikurnar eru víða fallnar og þessi tæplega 120 km og sex nátta, góða gönguleið ekki auglýst sem valkostur í útivist og ferðaþjónustu.

Nú eru breyttir tímar. Ferðaþjónustan eflist (þar þarf að gæta að þolmörkum í stóru og smáu), til eru fólkvangar kenndir við Bláfjöll og Reykjanes og nýjasta viðbótin er Reykjanes jarðminjagarður. Ég tel að dusta skuli ryk af Reykjavegi. Kanna hvort vinna ætti gönguleiðina upp sem rekstrarbæra margdægru og - ef svo er talið - koma henni í gagnið. Vissulega setur langt óróatímabil sem er hafið í eldstöðvakerfum skagans spurningamerki við ýmsar framkvæmdir og rekstur á SV-horninu og, því miður, óvissa er um framtíð Grindavíkur. Þær áskoranir þarf að vinna með líkt og í öðrum þáttum atvinnu- og öryggismála en nýjar gosmennjar vekja áhuga. Ef til vill getur nálægð við þéttbýlið verið galli á Reykjavegi en meta má nokkuð hlutlægt hvort svo sé og um leið hvar breytinga er þörf á legu leiðarinnar og gistimöguleikum á þessu mjög svo áhugaverða útivistarsvæði.

Nota hér tækifærið til þess að minna á tvær, stikaðar gönguleiðir sem ég lagði að beiðni Reykjanes Geopark ásamt Ólafi Þórissyni ljósmyndara fyrir allmörgum árum. Upphafsstaður beggja er við geirfuglsstyttuna skammt frá Reykjanesvita. Sú styttri (tæpir 5 km) liggur yfir Valabjargargjársigdalinn, að minni vitanum suðaustan við hinn, upp á eldstöðina Skálafell, niður að Gunnuhverasvæðinu og þaðan að upphafstað. Lengri „100 gíga leiðin“ (um 13 km) sneiðir Gunnuhverasvæðið, borholur og gamla gíga, liggur upp á Sýrfell (95 m) með útsýni yfir ótal eldgíga, þverar sandborin hellu- og apalhraun. Liggur meðfram Yngri-Stampagígaröðinni og framhjá Reykjanesvirkjun, allt til leifanna af stórum gjóskugíg við ströndina. Með göngu að geirfuglinum er hringunum lokað. Þessar forvitnilegu náttúruleiðir mætti kynna og nýta mun betur er nú er í boði.

Höfundur er jarðvísindamaður.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×