Skoðun

Heilsa ís­lenskrar þjóðar, sam­ofin fram­þróun í læknis­fræði á Ís­landi

Theódór Skúli Sigurðsson skrifar

Í dag höldum við hátíðlegan dag íslenska læknisins 17.maí, á fæðingardegi Bjarna Pálssonar (1719-1779) fyrsta sérmenntaða læknisins á Íslandi. Íslendingar eiga frumkvöðlum á borð við Bjarna Pálssyni mikið að þakka, sem sótt hafa í aldanna rás nýja læknisþekkingu frá virtustu háskólum heims og flutt til Íslands, landi og þjóð til heilla og framdráttar.

Íslendingar eru svo gæfusamir að flesta sérhæfða læknisþjónustu er hægt að fá á Íslandi, í stað þess að þurfa að sækja hana erlendis með ærnum tilkostnaði og óþægindum fyrir sjúklinga, slíkt er ekki sjálfgefið. Áframhaldandi uppbygging sérhæfðrar læknisþjónustu verður áfram mikilvæg íslenska heilbrigðiskerfinu og ávallt hagkvæm fjárfesting fyrir íslenskt samfélag, en mikið getur sparast með innleiðingu nýrra meðferðarmöguleika við alvarlegum sjúkdómum á Íslandi.

Félag sjúkrahúslækna var stofnað 18. janúar 2018, sem aðildarfélag í Læknafélagi Íslands og telur tæplega 500 sérfræðilæknar sem starfa flestir á heilbrigðistofnunum landsins. Hlutverk félagsins er að gæta faglegra og félagslegra hagsmuna félagsmanna, standa vörð um símenntun og rannsóknarstarf lækna ásamt því að stuðla að framþróun í læknisfræði og heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Læknar í Félagi sjúkrahúslækna búa margir yfir mikilli reynslu sem er jafnfram svo sérhæfð að viðkomandi læknisþjónustu er eingöngu hægt að veita innan veggja Landspítalans. Stjórnvöld verða að skilja að eigi Landspítalinn áfram að gegna sínu lykilhlutverki, með aðgengi að bestu læknismeðferðum sem völ er á, þarf fjárhagslegan stöðugleika í rekstri auk viðunandi starfsskilyrða fyrir lækna. Í aukinni samkeppni um sérfræðilækna með eftirsótta sérkunnáttu, verða opinberar heilbrigðisstofnari að geta boðið læknum sínum sambærileg launakjör og eru í boði annars staðar í heilbrigðiskerfinu.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan Bjarni Pálsson hóf störf sem læknir á Íslandi og gríðarleg framþróun orðið innan læknisfræðinnar á liðnum árum. Íslendingar hafa komið vel út úr flestum mælistikum er varða heilsu þjóðar, en þó má ekki sofna á verðinum. Mikilvægt er að stjórnvöld hlusti vel á ráðleggingar íslenskra lækna varðandi mótun heilbrigðiskerfisins. Óvissa í heilbrigðismálum síðustu ár hefur valdið því að mikill fjöldi íslenskra sérfræðilækna hefur ákveðið að starfa áfram erlendis að loknu sérnámi. Til að viðhalda framþróun íslenska heilbrigðiskerfisins og heilsu þjóðarinnar, ætti að vera algjört forgangsmál stjórnvalda að skapa aðlaðandi starfsumhverfi svo að þessir læknar velji að snúi aftur heim – Ísland þarf nauðsynlega á kröftum þeirra og þekkingu að halda inní framtíðina.

Sjálfur hef ég aldrei efast um ákvörðun mína að gerast læknir, þó það sé oft krefjandi að standa vaktina alla daga ársins á öllum tímum sólarhringsins í erfiðum aðstæðum, eru það um leið einstök forréttindi að fá að lækna og líkna.Læknar eru kjarninn í íslenska heilbrigðiskerfinu, í fremstu víglínu þegar alvarlegir sjúkdómar dynja á Íslendingum, bera þungan af erfiðum ákvörðunum og marka stefnuna, við getum verið stoltir af okkar framlagi í þágu íslenskrar þjóðar.

Til hamingju með daginn íslenskir læknar!

Höfundur er formaður Félags sjúkrahúslækna



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×