Sport

Hunda­hvíslarinn sem bræddi hjörtu Kansasbúa

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Derrick Nnadi fagnar eftir sigur í Ofurskálinni árið 2020. Skömmu síðar höfðu 109 hundar verið ættleiddir þökk sé Nnadi.
Derrick Nnadi fagnar eftir sigur í Ofurskálinni árið 2020. Skömmu síðar höfðu 109 hundar verið ættleiddir þökk sé Nnadi. Elsa/Getty Images

Derrick Nnadi er ekki það nafn sem ber fyrst á góma þegar farið er yfir leikmenn meistaraliðs Kansas City Chiefs í NFL-deildinni. Þessi sterkbyggði varnarmaður leynir á sér og hefur gert góða hluti utan vallar undanfarin ár.

Chiefs hafa nokkuð eðlilega vakið mikla athygli undanfarin ár enda þrívegis farið með sigur af hólmi í NFL-deildinni síðan árið 2020 ásamt því að tapa fyrir Tampa Bay Buccaneers í Ofurskálinni árið 2021. Það eru margar ofurstjörnur í liðinu en varnarmaðurinn (e. defensive tackle) Nnadi verður seint sagður þar á meðal. 

Hann er 28 ára gamall og hefur verið hluti af liðinu síðan 2018. Hann er gjörsamt naut að burðum en gengur þó undir gælunafninu „hundahvíslarinn“ ef Andy Reid, þjálfari liðsins, er spurður. Þannig er mál með vexti að þegar Nnadi var á öðru ári sínu í NFL-deildinni, árið 2019, var hann hluti af átaki þar sem Chiefs lagði sitt að mörkum til að hjálpa flækingshundum í borginni.

Eftir hvern sigurleik þá borgaði Nnadi því sem samsvaraði að ættleiða hund svo hægt væri að ættleiða hund hjá KC Pet Project án gjalds. Líkja má KC Pet Project við Dýrahjálp Íslands.

Í febrúar 2020 unnu Nnadi og félagar í Chiefs svo Ofurskálina. Reikna má með að leikmaðurinn hafi fagnað vel og innilega en að sama skapi þá ákvað hann að borga fyrir ættleiðingar á öllum þeim hundum sem voru í hundaskýli KC Pet Project á þeim tíma. Alls voru þeir 109 talsins og ekki löngu síðar höfðu þeir allir fengið ný heimili.

Hundavinurinn Nnadi varð samstundis einn ástsælasti dýravinur Kansas og þó víðar væri leitað. Síðan þá hefur hann hjálpað yfir 500 hundum að finna ný heimili. Oftast er um að ræða hunda sem eiga ekki mikla framtíð fyrir sér og eru jafnvel komnir á lista yfir þau dýr sem þarf að svæfa. 

Í Kansas eru slíkir hundar einfaldlega kallaðir „Nnadi hundar“ en þökk sé þessum mikla dýravin fá þeir í raun nýtt líf. Nnadi var ekki í stóru hlutverki hjá Chiefs á síðustu leiktíð og missti af Ofurskálinni vegna meiðsla en verður án efa áfram í guðatölu hjá stuðningsfólki félagsins sama hvort hann verði áfram leikmaður þess eður ei.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×