Enski boltinn

Kaup­stefna Brig­hton á­stæðan fyrir brott­hvarfi De Zerbi

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Mun ekki stýra Brighton á næstu leiktíð.
Mun ekki stýra Brighton á næstu leiktíð. Adam Davy/Getty Images

Það þótti heldur óvænt þegar tilkynnt var að Roberto De Zerbi myndi yfirgefa enska úrvalsdeildarfélagið Brighton & Hove Albion nú í sumar. Nú hefur verið greint frá því hvers vegna hann mun leita á önnur mið.

Hinn 44 ára gamli De Zerbi er talinn með efnilegri þjálfurum ensku úrvalsdeildarinnar en hann kom til Brighton árið 2022 frá Shakhtar Donetsk í Úkraínu. Þar áður hafði hann náð eftirtektarverðum árangri með Sassuolo í heimalandinu.

Hann vakti strax athygli fyrir leikstíl sinn og sá De Zerbi til þess að Brighton saknaði Graham Potter ekki neitt en sá fór til Chelsea. Það virtist ekki koma að sök að Brighton seldi einnig marga af sínu bestu mönnum en það virðist þó hafa farið í taugarnar á De Zerbi.

The Athletic hefur greint frá því að De Zerbi og eigandinn Tony Bloom séu einfaldlega ekki á sömu blaðsíðu þegar kemur að leikmannastefnu félagsins.

Sem stendur vill Brighton:

  1. Unga og efnilega leikmenn sem hægt er að kaupa ódýrt, þjálfa upp og selja fyrir fúlgur fjár eftir að þeir hafa sýnt hvað þeir geta hjá Brighton. Dæmi um slíka leikmenn eru: Kaoru Mitoma, Simon Adingra, Julio Enciso og Evan Ferguson.
  2. Reynslumikla leikmenn, helst enska, sem hafa unnið titla og geta leiðbeint yngri leikmönnum. Þar má nefna James Milner, Adam Lallana og Danny Welbeck.

De Zerbi vill einfaldlega fleiri leikmenn í aldurs- og launaflokknum þarna á milli. Það er Bloom ekki til í enda hefur hans hugmyndafræði skotið Brighton upp deildirnar og alla leið í Evrópukeppni á síðustu leiktíð, undir stjórn De Zerbi.

Þar sem Bloom haggast ekki á sinni skoðun og De Zerbi telur sig hafa komið Brighton eins langt og hann mögulega getur þá skilja leiðir í sumar.

De Zerbi hefur þegar verið orðaður við lið á borð við AC Milan og Bayern München á meðan Brighton horfir til Kieran McKenna, manninum sem hefur komið Ipswich Town úr C-deildinni í ensku úrvalsdeildina á aðeins tveimur árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×