Viðskipti innlent

Segja markaðs­torg blóðmjólka fyrir­tæki

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Jón Hilmar Karlsson og Kjartan Þórisson, forsvarsmenn Noona.
Jón Hilmar Karlsson og Kjartan Þórisson, forsvarsmenn Noona.

Bókunarforritið Noona hefur opnað fyrir veitingahúsabókanir. Forsvarsmenn fyrirtækisins segja markaðstorg, sem innheimti gjald af hverri bókun, freistast til að blóðmjólka veitingahús sem eigi þegar í vök að verjast vegna annarra verðhækkana. 

Í tilkynningu Noona segir að fyrirtækið hafi brugðist við ákalli veitingamanna um samkeppni á borðabókunarmarkaðnum. Í tilkynningunni eru fyrirtæki á borð við Dineout og Booking.com nefnd sem dæmi um fyrirtæki sem þjónustuveitendur verði fljótt háðir.

„Þau geta þannig orðið mjög valdamiklir milliliðir á markaðnum og í sumum tilfellum freistast til að blóðmjólka fyrirtækin. Við hjá Noona erum mjög meðvituð um þessa dýnamík og viljum ýta á móti henni,“ er haft eftir Jóni Hilmari Karlssyni stjórnarformanni Noona. 

„Við trúum því að slík nálgun sé verri fyrir alla aðila til lengri tíma litið, þar með talið markaðstorgið sjálft. Sem dæmi höfum við aldrei rukkað bókunargjöld þó það sé stærsta tekjulind margra annarra markaðstorga. Markmið okkar er að vera kraftur til góðs og þá sérstaklega í þessu erfiða rekstrarumhverfi veitingahúsa.“

Veitingamenn hafi kvartað undan miklum kostnaði við sambærileg kerfi sem fyrir séu á markaðnum, sem innheimti yfirleitt gjald af hverri bókun.

„Það er ótrúlega gaman að finna viðbrögð veitingamanna við því að við séum að koma með svona lausn. Það virðist hafa verið brýn þörf fyrir samkeppni og einhverjum til að hrista upp í markaðnum,“ er haft eftir framkvæmdastjóranum Kjartani Þórissyni. 

Auk þess segir að Noona áætli að veitingahús geti lækkað kostnað sinn við borðabókanir um allt að 90 prósent, með föstu mánaðargjaldi. 





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×